Laugardagur 5. desember 2020 kl. 12:14

Aðventugarðurinn í Reykjanesbæ opnaður

Aðventugarðurinn í Reykjanesbæ var opnaður formlega í ljósaskiptunum í morgun á Tjarnargötutorgi og í skrúðgarði þegar kveikt var á ljósaskreytingum og ljósin tendruð á jólatrénu á torginu. Markmið Aðventugarðsins er að lýsa upp svartasta skammdegið og skapa góða og notalega stemningu fyrir fjölskylduna í aðdraganda jóla. Orðið aðventa er dregið af latneska orðinu Adventus og merkir „að  koma“ og á því einstaklega vel við þetta tilefni þegar við undirbúum komu jólanna og bíðum þeirra með eftirvæntingu.

Gerið góð kaup og njótið dagskrár

Á torginu hafa verið settir upp söluskúrar sem opnir verða á laugardögum frá kl. 12-17 og á Þorláksmessu frá kl. 16-23. Þar gefur að líta handverk, sérvöru, veitingar og varning sem seldur verður í fjáröflunarskyni og verður vafalítið hægt að gera góð kaup í jólapakkann.

Óvæntar uppákomur verða einnig í garðinum og aldrei að vita nema jólasveinar og Grýla láti sjá sig. Ljúfir tónar munu óma og til dæmis verður hægt að kaupa sykurpúða og snúrubrauð til að grilla yfir eldstæði. Þá verður einnig boðið upp á jólalegan ratleik í skrúðgarðinum þar sem börn af leikskólum bæjarins eru einnig þessa dagana að hjálpa til við að skreyta.

Götubiti á jólum

Nú á laugardaginn fær Aðventugarðurinn góða heimsókn þegar „Götubiti á jólum“ mætir á svæðið en þar eru á ferðinni nokkrir matarvagnar sem eru komnir í jólabúninginn og munu bjóða upp á gómsætan jólamatseðil. Matarvagnarnir verða á svæðinu frá kl.15-18.

Höfum sóttvarnir í hávegum

Í ljósi ástandsins er mjög mikilvægt að allir leggi sig fram við að hafa sóttvarnir í hávegum. Til að tryggja sem best öryggi allra er grímuskylda í Aðventugarðinum og fólk beðið að sýna tillitssemi og umburðarlyndi og huga vel að tveggja metra reglunni. Þeir sem sýna einkenni kvefs eða annarra veikinda eru vinsamlegast beðnir um að fylgja fyrirmælum og halda sig heima. Við minnum á að verslanir við Hafnargötu eru líka opnar svo og söfnin okkar og því um að gera að dreifa sér um bæinn og njóta þess sem þar er boðið upp á. Grýla er t.d. í aðalhlutverki í Bókasafninu og í Duus Safnahúsum er boðið upp á jólasveinaratleik og jólastofu og þar leynasat líka þau Grýla og Leppalúði. Á laugarda opnar þar myndlistarsýningin 365 þar sem getur að líta verk eftir 365 myndlistarmenn sem mörg hver verða til sölu.

Best skreytta húsið og gatan

Á vefsíðunni betrireykjanesbaer.is er nú hægt að senda inn tillögur að best skreytta húsinu og best skreyttu götunni í bænum og greiða þeim atkvæði. Eru allir hvattir til að taka þátt í þessu skemmtilega uppátæki sem fyrst og fremst er gert til gamans en áberandi er hve íbúar hafa lagt sig fram við að skreyta hús sín í ár enda allt sem getur glatt okkur og lyft andanum einstaklega vel þegið. Verðlaun frá Húsasmiðjunni verða veitt því húsi og þeirri götu sem fær flest atkvæði frá íbúum.

Höfum gaman saman og njótum lífsins um leið og við hugum vel að persónulegum sóttvörnum.