Fimmtudagur 12. mars 2026 kl. 08:36

„Dýraræði“ í Sandgerðisskóla

Árshátíð Sandgerðisskóla var haldin með mikilli pomp og prakt á dögunum þegar nemendur á miðstigi sýndu leikritið Dýrabæ. Verkið, sem er samið af Írisi Valsdóttur, er djarfleg og pólitísk sýning þar sem dýrin á bænum taka völdin í eigin hendur.

Það var engu til sparað við uppsetninguna, en matsal skólans var nánast umbreytt í atvinnuleikhús fyrir tilefnið. Rúmlega 100 nemendur tóku þátt í sýningunni auk þess sem allir starfsmenn skólans, allt frá skólaliðum til stjórnenda, lögðu hönd á plóg.

Leikritið byggir á hinu klassíska verki Animal Farm eftir George Orwell. Íris Valsdóttir, handritshöfundur og leikstjóri, segir verkið vera ákveðið skot út í samfélagið. „Við viljum ekki hafa neina einræðisherra, heldur viljum við öll svolítið fá að stjórna. Eins og segir í leikritinu, þá er þetta 'dýraræðislegt',“ segir Íris og hlær.

Sagan fjallar um dýr sem reka bóndann af bænum og ætla að innleiða lýðræði, en fljótlega fara svínin að taka völdin og láta hin dýrin vinna fyrir sig. Hlynur Þór Valsson, aðstoðarleikstjóri, bætir við að boðskapurinn sé skýr: „Vald spillir og algert vald gjörspillir. Við erum að leggja áherslu á einkenn-isorð skólans; vöxt, virðingu, vilja og vináttu, og að það skipti máli að standa saman sem heild.“

Þrátt fyrir flókinn texta og stóra sýningu stóðu krakkarnir sig eins og fagaðilar. „Ef einhver vill meina að það sé ekki þrautseigja og dugnaður í börnum í dag, þá er það mesta vitleysa sem ég hef heyrt,“ segir Íris stolt. Hún segir nemendurna hafa gripið allar breytingar á síðustu stundu af mikilli yfirvegun.

Leikstjórarnir viðurkenna að þeir hafi jafnvel verið stressaðri en börnin sjálf fyrir sýninguna. „Við erum með rafmagnssnúrur út um allt sem gætu klikkað, en krakkarnir eru bara hressir og kátir,“ segir Hlynur Þór. Hann telur víst að margir þeirra eigi eftir að láta að sér kveða á stóru sviðunum í framtíðinni: „Hér eru kandídatar sem sýna stórkostlega takta.“

Að sýningu lokinni tók „gamla góða rútínan“ aftur við í Sandgerðisskóla, stærðfræðin og íslenskan, en dýraræðið í matsalnum mun vafalaust lifa lengi í minni nemenda og bæjarbúa.