Public deli
Public deli

Mannlíf

Tuttugu árum fagnað á Fitjum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 27. desember 2019 kl. 07:21

Tuttugu árum fagnað á Fitjum

„Þetta hefur byrjað mjög vel hérna á Fitjum þannig að við getum verið bjartsýn. Ég er hóflega bjartsýnn á næsta ár á Suðurnesjum en við vonum auðvitað það besta. Suðurnesjamenn eru vanir sveiflum. Við þekkjum það eftir tvo áratugi í fyrirtækjarekstri,“ sagði Kjartan Steinarson í stuttu spjalli við VF þegar hann bauð til 20 ára afmælisfagnaðar í nýju húsnæði bílasölu sinnar, K.Steinarsson sem flutti nýlega að Njarðarbraut 15 í Njarðvík.

Margir ættingjar, vinir og viðskiptamenn heimsóttu Kjartan og Guðbjörgu Theodórsdóttur, konu hans á þessum tímamótum síðasta sunnudag. Már Gunnarsson, tónlistarmaður söng jólalög og boðið var upp á veitingar í tilefni tímamótanna en Kjartan hóf rekstur bílasölu fyrir tuttugu árum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Meðfylgjandi myndir voru teknar í afmælisfagnaðinum.