JS Campers
JS Campers

Mannlíf

Þrautaleikur fyrir fjölskyldur í Reykjanesbæ 23. - 24.maí
Miðvikudagur 20. maí 2020 kl. 18:10

Þrautaleikur fyrir fjölskyldur í Reykjanesbæ 23. - 24.maí

Árlega hefur Barnahátíð verin haldin með listsýningum allra skólastiga í Duus Safnahúsum og skemmtilegum fjölskyldudegi við Duus Safnahús, þar sem boðið hefur verið upp á  fjölbreyttar smiðjur og Skessan boðið í lummur.  Í ljósi ástandsins varð að gera breytingar á þessu fyrirkomulagi. 

Í stað fjölskyldudagsins hefur nú verið brugðið á það ráð í samstarfi við Skemmtigarðinn að bjóða upp á ótrúlega skemmtilegan þrautaleik fyrir fjölskyldur í Reykjanesbæ helgina 23. - 24.maí. Þar sameinum við  menningarhluta hátíðarinnar, fjölskyldudaginn og þjófstörtum um leið Hreyfivikunni sem hefst formlega 25. maí.   

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Það eina sem þarf til að taka þátt er sími og að skrá sig til leiks.  Leikurinn verður opinn alla helgina og hægt er að hefja þátttöku hvenær sem fólki hentar.

Í boði eru 4 leikir; Njarðvík, Innri-Njarðvík, Ásbrú og Hafnir og Keflavík. Hægt er að velja hvaða leik  sama hvar fólk býr. Hægt er að spila einn leik, tvo, þrjá eða alla eftir hentisemi hverrar fjölskyldu. Verðlaun verða veitt fyrir ýmsa þætti í leiknum auk þess sem heppnir þátttakendur verða dregnir út.