Safnahelgi
Safnahelgi

Fréttir

Sá stærsti er til sýnis
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar virðir fyrir sér 23 fermetra fánann sem er til sýnis í Bíósal Duus húsa.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 15. júní 2024 kl. 14:22

Sá stærsti er til sýnis

Stærsti Íslandsfáni landsins er til sýnis í Bíósal Duus húsa í Reykjanesbæ Honum er flaggað einu sinni á ári, á 17. júní í skrúðgarðinum í Keflavík.

Það er áratuga gömul hefði í Reykjanesbæ að valinkunnir bæjarbúar dragi fánann að húni 17. júní.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Um þessar mundir er því fagnað að 80 ár eru liðin frá stofnun lýðveldisins. Þann 17. júní 1944 tók ný stjórnarskrá landsins gildi og lýðveldishátíð var haldin á Þingvöllum. Þangað fylktu landsmenn liði og er talið að á bilinu 25-30 þúsund manns hafi tekið þátt í hátíðarhöldunum.

Í Bíóslalnum er fáninn sem var hylltur á lýðveldishátíðinni en hann er engin smásmíði að stærð, rúmir 23 fermetrar.

Axel Jónsson er einn þeirra merku bæjarbúa sem hafa fengið þann heiður að draga stærsta þjóðfána okkar að húni á 17. júní.