Íþróttir

Grindavík/Njarðvík tapaði fyrir FH
Grindavík/Njarðvík tapaði í kvöld fyrir FH á Kaplakrikavelli. Mynd úr safni.
Miðvikudagur 6. maí 2026 kl. 23:47

Grindavík/Njarðvík tapaði fyrir FH

Grindavík/Njarðvík tapaði í kvöld fyrir FH í Kaplakrika í þriðju umferð Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Eftir mikla dramatík, markvörslu í hæsta gæðaflokki og vítaklúður, voru það heimakonur sem fögnuðu 2-1 sigri.

FH byrjaði leikinn af miklum krafti og strax á 8. mínútu dró til tíðinda. Ída Marín Hermannsdóttir átti þá stungusendingu sem galopnaði vörn Grindavíkur/Njarðvíkur. Nia Raisa Christopher slapp ein í gegn, lék á Genevieve í markinu og lagði boltann í netið, 1-0.

Aðalbros
Aðalbros
Sýndu klærnar

Eftir því sem leið á hálfleikinn jafnaðist leikurinn og gestirnir fóru að láta til sín taka. Á 41. mínútu bar sú pressa árangur. Eftir hornspyrnu barst boltinn út úr teignum og Sophia Romine átti skot/sendingu sem rataði beint á Danai Kaldaridou, sem kláraði færið af öryggi og jafnaði metin, 1-1.

Vítaspyrna, klúður og sigurmark

Seinni hálfleikurinn var afar fjörugur. Á 63. mínútu fékk FH vítaspyrnu eftir að Natasha fékk boltann í höndina innan teigs. Nia Raisa Christopher steig á punktinn en Genevieve, sem átti stórleik í marki Grindavíkur/Njarðvíkur, gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna frábærlega.

Gleðin var þó skammlíf hjá gestunum því einungis mínútu síðar náði FH forystunni á ný. Eftir darraðardans í teignum fylgdi Ingibjörg Magnúsdóttir vel eftir og skoraði af stuttu færi, 2-1.

Dramatík á lokamínútunum

Grindavík/Njarðvík fékk dauðafæri til að jafna á 79. mínútu. Sophia Romine komst ein í gegn eftir mistök í vörn FH, en Aldís í marki FH kom vel út á móti og lokaði færinu frábærlega. Í uppbótartíma reyndu gestirnir hvað þeir gátu og Natasha sýndi flotta takta, en vörn FH hélt út og fyrsti sigur FH staðreynd.

Grindavík/Njarðvík mætir næst Þrótti Reykjavík mánudaginn 11. maí í Reykjavík.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar