Fimmta tap Keflavíkur í sex leikjum
Keflavík tapaði fimmta leik sínum af sex í Bónus-deild kvenna í körfubolta í kvöld þegar þær lutu í lægra haldi gegn Valskonum á Hlíðarenda. Lokatölur 87-70 fyrir Val.
Það var jafnræði með liðunum í fyrstu tveimur leikhlutunum og Valskonur voru með fjögurra stiga forskot í leikhlé, 40-36.
Þær rauðklæddu tóku síðan öll völd á vellinum í þriða leikhluta og unnu hann 21-12. Eftir það var á brattann að sækja fyrir Keflavíkurkonur sem náðu að minnka muninn í 11 stig en nær komust þær ekki og Valskonur bættu aftur í forskotið og unnu með sautján stiga mun.
Þetta var fimmta tap Keflavíkur sem hefur farið illa af stað með ungan þjálfara við stjórnvölinn, Arnór Daða Jónsson og er í þriðja neðsta sæti með aðeins 2 stig. Sóknarleikur liðsins hefur ekki gengið nógu vel og í þessum leik skoraði Amaiquen Siciliano 29 stig eða nærri því aðra hverja körfu. Hún stóð sig vel en sama er ekki hægt að segja um landsliðskonurnar Önnu Ingunni Svansdóttur og Thelmu Dís Ágústsdóttur. Þær náðu sér engan veginn á strik í sókninni, skoruðu aðeins fimm stig hvor og voru með afleita skotnýtingu. Emelía Ósk Gunnarsdóttir skoraði 11 stig og Anna Lára Vignisdóttir 12 stig. Hanna Gróa Halldórsdóttir skoraði 8 stig. Aðeins sex leikmenn léku leikinn hjá Keflavík. Hinar sex á leikskýrslu komu ekki inn á. Keflavík bíður væntanlega eftir nýjum leikmanni í stað Hönnuh Little sem fékk að taka pokann sinn.
Hin keflvíska hjá Val, Þóranna Kika Hodge Carr, var Keflvíkingum erfið en hún skoraði 19 stig.
Valur-Keflavík 87-70 (21-16, 19-20, 21-12, 26-22)
Valur: Alyssa Marie Cerino 21/12 fráköst, Dzana Crnac 19, Þóranna Kika Hodge-Carr 19/10 fráköst, Reshawna Rosie Stone 17/5 fráköst/12 stoðsendingar, Sara Líf Boama 11/13 fráköst, Marlee Ann Ball 0, Aníta Kristín Jónsdóttir 0, Iris Loa Hermannsdottir 0, Berta María Þorkelsdóttir 0, Fatima Rós Joof 0, Bergdís Anna Magnúsdóttir 0.
Keflavík: Amaiquen Siciliano 29/6 fráköst/5 stoðsendingar, Anna Lára Vignisdóttir 12/8 fráköst, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 11/5 fráköst, Hanna Gróa Halldórsdóttir 8, Thelma Dís Ágústsdóttir 5/5 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 5/5 stoðsendingar, María Jónsdóttir 0, Ásdís Elva Jónsdóttir 0, Ásdís Lilja Guðjónsdóttir 0, Heiðrún Lind Sævarsdóttir 0, Lísbet Lóa Sigfúsdóttir 0, Oddný Hulda Einarsdóttir 0.
Dómarar: Davíð Kristján Hreiðarsson, Jakob Árni Ísleifsson, Bjarni Rúnar Lárusson






