Hlaðvarp // Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins og formaður bæjarráðs síðustu fjögur árin, segir Reykjanesbæ vera að stíga út úr áratug tiltektar og inn í tímabil framtíðarinnar. Hún kveðst hafa öðlast dýrmæta reynslu sem starfandi bæjarstjóri í ólgusjó eldgosa og innviðabresta og býður sig nú fram til að leiða sveitarfélagið á nýjum forsendum. Kjörtímabilið sem senn er á enda hefur verið viðburðaríkt í Reykjanesbæ. Halldóra Fríða horfir stolt til baka á síðustu fjögur ár og segir meirihlutann hafa fylgt málefnasamningi sínum eftir af mikilli fylgni, þrátt fyrir að fólk hafi týnst úr brúnni í önnur verkefni á leiðinni. Sjálf hefur hún verið í eldlínunni, bæði sem bæjarfulltrúi, formaður bæjarráðs og sem starfandi bæjarstjóri í fjarveru Kjartans Más vegna veikinda hans.









