Miðflokkurinn í Reykjanesbæ
Miðflokkurinn í Reykjanesbæ

Hlaðvarp Víkurfrétta

Hlaðvarp // Arnar Páll Guðmundsson
Fimmtudagur 30. apríl 2026 kl. 14:57

Hlaðvarp // Arnar Páll Guðmundsson

Arnar Páll Guðmundsson leiðir nýjan lista Viðreisnar í Reykjanesbæ í kosningunum í vor. Hann boðar ferska vinda í bæjarpólitíkina og leggur áherslu á að nýta meðbyr flokksins á landsvísu til að hafa áhrif á heimavelli. Hann vill sjá skilvirkari stjórnsýslu, aukna áherslu á velferðarmál og faglega ráðinn bæjarstjóra sem starfar þvert á flokka.

Arnar Páll er 39 ára Reykjanesbæingur í húð og hár. Hann hefur verið ötull í starfi Viðreisnar frá stofnun flokksins og segist stoltur af því að leiða lista sem er skipaður fólki með fjölbreyttan bakgrunn. „Meðalaldurinn á listanum er um 35 til 40 ár. Þetta er nýtt fólk sem vill láta til sín taka í samfélaginu og kemur með nýja sýn á hlutina,“ segir Arnar Páll.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar