Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Vínbúðin í Reykjanesbæ valin sú besta fimmta árið í röð
Föstudagur 28. apríl 2017 kl. 06:00

Vínbúðin í Reykjanesbæ valin sú besta fimmta árið í röð

Fékk 10 stig af 10 mögulegum Lykillinn að þessum góða árangri er góður og samheldinn starfshópur Vínbúðin er byrjuð að vinna eftir nýju kerfi sem kallast Græn skref

Vínbúðin í Reykjanesbæ var valin besta Vínbúðin á Íslandi árið 2016 í flokki stærri vínbúða. Rannveig Ævarsdóttir, verslunarstjóri, segir lykilinn að árangrinum vera samheldinn hópur starfsfólks og litla starfsmannaveltu. „Við erum einstaklega góður og samheldinn hópur. Fólk hefur hætt og nýtt komið í staðinn, eins og gengur og gerist, en við höfum verið heppin að fá til okkar fólk sem hefur smellpassað í hópinn. Það skilar sér í góðum anda og góðri þjónustu,“ segir hún.

Vínbúðin fékk 10 stig af 10 möguleikum, sem er glæsilegur árangur en það eru 16 búðir í flokki stærri vínbúða. Það var árið 2012 sem Vínbúðin í Reykjanesbæ var fyrst valin sú besta á landinu og hefur síðan þá alltaf verið í efsta sæti. Hjá Vínbúðinni í Reykjanesbæ starfa á milli tíu og tólf starfsmenn samtals, en flestir þegar mest er að gera á föstudögum og laugardögum. 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Framfylgja stefnu um samfélagslega ábyrgð
Á Íslandi eru fimmtíu vínbúðir og þegar verið er að velja þá bestu er búðunum skipt í tvo hópa, minni og stærri vínbúðir og ein í hvorum flokki er valin Vínbúð ársins. Vínbúðin í Reykjanesbæ er í flokki stærri vínbúða eins og allar vínbúðir á höfuðborgarsvæðinu, Selfossi og Akureyri. Til þess að ná þessum árangri þarf bæði að ná góðum árangri í ákveðnum rekstrarþáttum ásamt því að mæld er ánægja viðskiptavina og viðmót starfsfólks. Rannveig segir þau hjá Vínbúðinni í Reykjanesbæ leggja mikla áherslu á að framfylgja stefnu um samfélagslega ábyrgð, meðal annars með því að spyrja ungt fólk um skilríki til að koma í veg fyrir að fólk undir 20 ára aldri geti verslað áfengi.

Starfsmenn eru fróðir um vöruna
Stór hluti af starfinu í Vínbúðinni er meðal annars ráðgjöf um val á víni með mat. „Ég get sagt með stolti að nær allir starfsmenn okkar hafa farið í gegnum Vínskólann hjá ÁTVR og lært almennt um vín, hvaðan þau koma og hver séu helstu einkenni þeirra eftir löndum og héruðum,“ segir Rannveig og er greinilega stolt af sínu fólki og þessum frábæra árangri.

Græn skref
Nú eru Vínbúðirnar að taka upp nýtt kerfi sem kallað er Græn skref sem snýst um að efla vistvænan rekstur ríkisins með kerfisbundnum hætti. Aðgerðirnar miða einkum að því að hafa jákvæð áhrif á umhverfið, bæta starfsumhverfi og draga úr rekstrarkostnaði. Að sögn Rannveigar verða Grænu skrefin tekin inn í mælingu fyrir árið 2017 og hefur Vínbúðin náð öllum 5 markmiðunum. Starfsmenn hafa einnig fengið hvatningu til að ganga, hjóla eða nota almenningssamgöngur við að koma sér til og frá vinnu.