Þrír nemendur í Fisktækniskólanum hlutu námsstyrki
Þrír nemendur í Fisktækniskóla Íslands í Grindavík hlutu námsstyrki fyrir árið 2023 úr menntasjóði Íslensku sjávarútvegsverðlaunanna og voru þeir afhentir við hátíðlega athöfn í Íslenska sjávarklasanum í síðustu viku.
Á þriðja tuga umsóknir bárust en verðlaunahafarnir þrír hljóta 300 þúsund króna styrk hver. Þetta eru þau Kristín Pétursdóttir, sem leggur stund á nám í fiskeldi, Hreinn Óttar Guðlaugsson, sem leggur stund á nám í Marel-fisktækni og Dominique Baring en hann leggur stund á nám í gæðastjórnun og fiskeldi.
Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólameistari Fisktækniskóla Grindavíkur, segir að styrkirnir séu ekki aðeins sterk traustyfirlýsing á starfi skólans, heldur einnig viðurkenning á mikilvægi menntunar og þjálfunar í greininni. „Þeir eru sömuleiðis hvatning fyrir ungt fólk og fullorðna til að feta þessa braut og hafa mikla þýðingu fyrir nemendur okkar. Mig langar til að þakka Íslensku sjávarútvegssýningunni, sérstaklega Marianne, fyrir samstarfið sem hefur verið afskaplega gott í gegnum árin.“
Kristín Pétursdóttir: „Styrkurinn felur í sér mikla viðurkenningu í mínum huga og ég er afskaplega þakklát og ánægð fyrir að hafa hlotið hann, sem ég bjóst alls ekki við fyrirfram. Það er ýmis kostnaður samfara náminu og ef maður missir úr vinnu hjálpar styrkurinn til að draga mann á land ef svo má segja. Ég vinn núna sem verkstjóri hjá Matorku í fiskeldi á landi og ég hugsa að framtíð mín verði á því sviði. Fiskeldisnámið í Fisktækniskóla Grindavíkur veitir mér kost á að öðlast þekkingu á þeirri starfsemi frá A til Ö og vinna mig áfram upp. Styrkurinn hjálpar þannig einnig til að fá stærri og betri tækifæri í greininni.“
Hreinn Óttar Guðlaugsson: „Ég er í Marel-tækninámi sem mun veita mér kost á frekari menntun og betri störfum og styrkurinn felur tvímælalaust í sér hvatningu og stuðning við framhaldið. Ég hef líka mikinn áhuga á vélum og vélbúnaði, hef það frá föður mínum sem er sérfræðingur á sviði Baader-véla. Ég hef ekki getað unnið á meðan ég einbeiti mér að náminu og styrkurinn hjálpar heilmikið til að bæta fjárhaginn og styðja mig í áframhaldandi nám.“
Dominique Baring: „Ég er afskaplega ánægður og þakklátur með að hafa fengið IceFish-styrkinn. Hann er ekki aðeins mikilvæg viðurkenning, heldur hjálpar mér fjárhagslega, felur í sér hvatningu og veitir mér stuðning til að geta haldið áfram í námi. Ég get nýtt mér hann núna þegar ég tek næstu skref í menntun, en ég hyggst leggja stund á sjávarútvegsfræði í Háskólanum á Akureyri.“
Umsóknir um styrki voru metnar af dómnefnd sérfræðinga í sjávarútvegi sem í sitja Ólafur Jón Arnbjörnsson, skólastjóri Fisktækniskóla íslands (nú í leyfi), Sigurjón Elíasson, fræðslu- og þróunarstjóri á alþjóðasviði Marel, Hrefna Karlsdóttir, sérfræðingur í fiskveiðistjórnun og alþjóðamálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Örn Pálsson, framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda, og Bjarni Þór Jónsson, fulltrúi Mercator Media/Íslensku sjávarútvegssýningarinnar á Íslandi.
Fisktækniskóli Íslands var stofnaður í Grindavík árið 2010 í því skyni að svara þörfum íslensks sjávarútvegs og landvinnslu með því að mennta hæft fólk til starfa í greininni. Skólinn býður upp á fjölbreytt nám í fisktækni, fiskeldi, gæðastjórnun og Marel vinnslutækni.