Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

 Þrálát lús herjar á yngri bekki
Þriðjudagur 26. október 2010 kl. 09:26

Þrálát lús herjar á yngri bekki

Að undanförnu hafa komið upp þrálát tilfelli um lús í yngri bekkjum Njarðvíkurskóla. Skólahjúkrunarfræðingur hefur sent bréf á heimili nemendanna vegna málsins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Í pósti til foreldra og forráðamanna nemenda segir Lára Guðmundsdóttir skólastjóri að hún hvetji alla foreldra til að fylgja leiðbeiningum hjúkrunarfræðings og fylgjast vel með sínum börnum. „Það er nauðsynlegt að foreldrar kemdi reglulega og samviskusamlega til að uppræta lúsina sem fyrst,“ segir Lára skólastjóri.

Höfuðlúsin (Pediculus humanus capitis) er lítið skorkvikindi sem hefur aðlagað sig manninum og lifir sníkjulífi í hári á höfði og nærist á því að sjúga blóð úr hársverðinum. Hún er ekki talin bera neina sjúkdóma og er því skaðlaus hýslinum. Allir geta smitast af höfuðlús en staðfest smit er algengast hjá 3-12 ára börnum. Höfuðlúsasmit er ekki vegna sóðaskaps, segir á vísindavef Háskóla Íslands.

Mikilvægt er að þeir sem greinast með höfuðlús eða forráðamenn þeirra bregðist strax við smitinu, með þeim aðferðum sem ráðlagðar eru hér á eftir, til að komið sé í veg fyrir dreifingu til annarra.

Lúsin getur farið á milli hausa ef bein snerting verður frá hári til hárs í nægilega langan tíma til að hún geti skriðið á milli, en lúsin getur hvorki stokkið, flogið né synt.

Höfuðlús sem fallið hefur úr höfði og út í umhverfi verður strax löskuð og veikburða og getur þar af leiðandi ekki skriðið á annað höfuð og sest þar að. Þess vegna er talið að smit með fatnaði og innanstokksmunum sé afar ólíklegt. Það er þó ekki hægt að útiloka að greiður, burstar, húfur og þess háttar, sem notað er af fleiri en einum innan stutts tíma, geti hugsanlega borið smit á milli.

Fróðleikur um lúsina.

Myndir af Vísindavef HÍ.