Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Vatnslaust sjampó frá Zeto
Eydís er mikil áhugamanneskja um nýtingu þara og þörunga úr svávarmálinu. Hún hefur m.a. gefið út bók um íslenska matþörunga en það gerði hún á síðasta ári ásamt Silju Dögg Gunnarsdóttur. Mynd úr safni Víkurfrétta
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 28. maí 2021 kl. 09:35

Vatnslaust sjampó frá Zeto

Zeto er ungt nýsköpunarfyrirtæki á Suðurnesjum sem vinnur að því að þróa umhverfisvænar húð- og hárvörur úr íslensku þaraþykkni. Zeto hefur nú sett á markaðinn byltingarkennt, íslenskt og vatnslaust sjampó.

Eydís Mary Jónsdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur, er einn stofnenda fyrirtækisins en áhugi hennar á húðvörum kviknaði þegar hún komst að því að sonur hennar væri með ofnæmi fyrir parabenum, sem notuð eru sem rotvarnarefni í ýmsum kremum. Zeto var valið eitt af 500 mest spennandi „deep-tech“ fyrirtækjum í heiminum árið 2017.

Balancing Powder Shampoo er nýtt og byltingarkennt vatnslaust sjampó frá Zeto. Formúlan er algjörlega vatnslaus en er þó notuð á sama hátt og venjulegt sjampó, nema það er bleytt upp í lófanum fyrir notkun.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þessi einstaka formúla stuðlar að jafnvægi hársvarðarins og gefur hárinu aukin raka, mýkt og gljáa, án þess að þyngja það. Sjampóið er laust við ertandi súlföt, silíkon, rotvarnarefni, alkóhól og ilmefni og hentar því sérstaklega vel fyrir viðkvæman hársvörð. Balancing Powder Shampoo er milt sjampó sem hentar öllum hártegundum og nota má daglega. Fullkomið sjampó fyrir hvern þann sem vill hugsa sem best um hár, húð og umhverfi.

Helstu kostir þess að nota Balancing Powder Shampoo frá Zeto eru m.a.:

  • Hentar vel fyrir einstaklinga með viðkvæman hársvörð.
  • Hentar vel fyrir litað hár.
  • Hentar vel fyrir curly hair method.
  • Inniheldur ekki ertandi súlföt, sílikon, rotvarnarefni, alkóhól, ilmefni eða vatn.
  • Inniheldur einungis efni sem hafa góð áhrif á húð og hár, brotna hratt niður í náttúrunni og hafa ekki neikvæð áhrif á vistkerfi hafsins.
  • Ein 42 gr flaska jafngildir 400 ml af venjulegu sjampói.
  • Handhægar umbúðir sem gleðilegt er að ferðast með.
  • Umbúðir endurnýtanlegar og gerðar úr endurunnu plasti til að ýta undir hringrásarendurnýtingu plasts.
  • Lægri flutningskostnaður og kolefnafótspor tengt flutningum.

Zeto er nýtt íslenskt, húð- og hárvörumerki sem byggir á áralöngum rannsóknum og vöruþróun, styrkt m.a. af AVS og Tækniþróunarsjóði. Vörur Zeto innihalda lífvirkt, íslenskt þaraþykkni sem róar, styrkir og viðheldur heilbrigði húðarinnar, auk annara hreinna og virkra innihaldsefna. Alúð er lögð í að lágmarka öll umhverfisáhrif og því er einungis að finna í vörunum innihaldsefni sem brotna hratt niður í náttúrunni og hafa ekki neikvæð áhrif á vistkerfi hafsins. Umbúðir sjampósins eru endurnýtanlegar og gerðar úr endurunnu plasti til að ýta undir hringrásarendurnýtingu plasts.

Markmið Zeto er að þróa húð- og hárvörur með hreinum, virkum innihaldsefnum og lágmarks umhverfisáhrifum.

Vörurnar frá Zeto eru fáanlegar á www.rammagerdin.is