Icelandair skiptir um eigendur

Þrír hópar fjárfesta hafa fest kaup á 50,5% hlut í Icelandair Group. Hóparnir eru:
1. Langflug ehf (að mestu í eigu Samvinnutrygginga hf.) með 32% hlut.
2. Naust ehf (að mestu í eigu BNT hf.) með 11,1% hlut
3. Blue-Sky Transport Holding (að mestu í eigu Ómars Benediktssonar) með 7,4% hlut.
Glitnir hefur til viðbótar ráðstafað til fjárfesta og starfsfólks Icelandair Group allt að 16% hlut, þannig að alls hefur um 67% hlutafjár félagsins verið ráðstafað
Í tengslum við fyrirhugaða skráningu Icelandair Group á hlutafjármarkað mun fara fram almennt hlutafjárútboð, þar sem fagfjárfestum annarsvegar og almenningi hinsvegar gefst kostur á að skrá sig fyrir hlut í Icelandair Group. Stefnt er að sölu á allt að þriðjungi hlutafjár með þessum hætti. Fyrirkomulag útboðsins verður kynnt síðar.

Jón Diðrik Jónsson, framkvæmdastjóri hjá Glitni: „Við lýstum því yfir þegar við gengum frá samkomulagi við FL Group um skráningu Icelandair Group, að við teldum áhuga fjárfesta á félaginu mikinn og það hefur komið á daginn. Við höfum þegar gengið frá sölu á þeim hlut sem Glitnir sölutryggði fyrir tæpum tveimur vikum. Því til viðbótar hefur Glitnir ráðstafað um 16% til annarra fjárfesta og starfsfólks Icelandair Group þannig að nú hefur 67% hlutafjár í félaginu verið ráðstafað. Þetta er í takt við þær væntingar sem við höfðum til þessa verkefnis.”
Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group: „Stjórnendur Icelandair Group styðja áætlanir um skráningu á markað heilshugar og fagna því tækifæri sem það veitir. Áform eru uppi um að stjórnendur komi að kaupum á allt að 4% hlut sem sýnir okkar hug og tiltrú á félaginu. Markmið með skráningu er að fá að félaginu breiðan hóp fagfjárfesta og einstaklinga og efla þannig tengsl þessa mikilvæga fyrirtækis við almenning í landinu. Ég er afar ánægður með að í samkomulagi FL Group og Glitnis felist, að allir starfsmenn Icelandair Group muni fá tækifæri til að kaupa hlut í félaginu.”