Fréttir

Færri fengu fjárhagsaðstoð í janúar
Þriðjudagur 24. febrúar 2026 kl. 08:57

Færri fengu fjárhagsaðstoð í janúar

Fjárhagsaðstoð til framfærslu í Reykjanesbæ var greidd til 113 einstaklinga í janúar 2026, sem er umtalsverð fækkun frá 158 einstaklingum í janúar 2025. Samtals voru greiddar 17.214.688 kr. í janúar 2026, eða að meðaltali 152.342 kr. á hvern einstakling.

Til samanburðar nam fjárhagsaðstoð í janúar 2025 23.877.229 kr., að meðaltali 151.122 kr. á hvern einstakling. Heildargreiðslur lækkuðu því um 6.662.541 kr. milli ára, á sama tíma og fjöldi barna á framfæri foreldra/forráðamanna á fjárhagsaðstoð fór úr 56 niður í 30.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Þá fengu 270 einstaklingar greiddan sérstakan húsnæðisstuðning í janúar 2026, samtals 6.935.890 kr. Á sama tíma árið áður voru styrkþegar 274 og heildargreiðslur 6.770.575 kr.

Í janúar 2026 hélt áfrýjunarnefnd einn fund þar sem 21 mál var lagt fyrir nefndina. Átta erindi voru samþykkt, fimm synjað og átta frestað til næsta fundar.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100