1. maí 2024
1. maí 2024

Viðskipti

Albert Þór Kristjánsson og Rakel Másdóttir ráðin til Samkaupa
Fimmtudagur 18. janúar 2024 kl. 10:11

Albert Þór Kristjánsson og Rakel Másdóttir ráðin til Samkaupa

Albert Þór hefur tekið við stöðu forstöðumanns í upplýsingatækni og stafrænni þróun á fjármála- og rekstrarsviði og Rakel Másdóttir hefur tekið við stöðu verðstýringar- og verkefnastjóra á verslunar- og mannauðssviði hjá Samkaupum. Þau hafa bæði þegar hafið störf hjá fyrirtækinu. 

Rakel er með BA gráðu í lögfræði og viðbótardiplómur í opinberri stjórnsýslu og verkefnastjórnun. Áður hefur Rakel starfað sem deildarstjóri í Gerplu þar sem hún hélt utan um deild 600 iðkenda, 30 starfsmanna og þjónustaði um 1200 foreldra og sá meðal annars um markaðssetningu, samskipti og aðra verkefnastjórnun. Þá hefur hún sinnt störfum fyrir BTM lögmenn.  

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Albert Þór Kristjánsson kemur til Samkaupa frá Advania þar sem hann starfaði síðast sem verkefnastjóri hjá Veflausnum og leiddi stór verkefni í vefþróun. Áður starfaði hann sem tækni- og þjónustustjóri hjá Rekstrarlausnum Advania og veitti þar ráðgjöf og leiddi framþróun í tækniumhverfi lykilviðskiptavina. Albert er með sveinspróf í prentun og hefur lokið diplómanámi í margmiðlunarhönnun og samskiptum (e. multimedia design and communications).  

„Við erum stöðugt að leita leiða til að bæta fyrirtækið og þá þjónustu sem við veitum. Það er því mikill fengur fyrir okkur að fá til öflugt fólk með fjölbreytta reynslu og menntun eins og Rakel og Albert Þór búa yfir. Meginverkefni Rakelar verður að taka við verðlagseftirliti og fylgja eftir verðstefnu fyrirtækisins, sem er bæði mikilvægt og krefjandi verkefni, ekki síst á verðbólgutímum. Albert mun vinna að því að bæta stafræna þjónustu fyrir viðskiptavini okkar, en stafræn þróun og aukin sjálfvirknivæðing skiptir sífellt meira máli í verslanarekstri á Íslandi. Við erum mjög stolt af starfsfólkinu okkar og erum himinlifandi að fá þau í teymið okkar, “ segir Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Samkaupa.

Samkaup reka 60 verslanir víðsvegar um landið undir merkjum Nettó, Krambúðarinnar, Kjörbúðarinnar og Iceland. Hjá félaginu starfa um 1250 starfsmenn í rúmlega 660 stöðugildum.