Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Pistlar

Sóley Sigurjóns GK í stuði í janúar
Sóley Sigurjóns GK er búinn að eiga feikilega góðan janúar mánuð og veiddi 612 tonn í fimm túrum.
Gísli Reynisson
Gísli Reynisson skrifar
föstudaginn 4. febrúar 2022 kl. 10:30

Sóley Sigurjóns GK í stuði í janúar

Þá er þessi blessaði, erfiði janúar­mánuður á enda kominn og eins og hefur verið skrifað hérna í þessum pistlum mínum í janúar þá var hann mjög erfiður.

Algjört aflahrun var á bátunum en kannski góðu fréttirnar þær að þeir dagar sem bátarnir komust á sjóinn var mjög góð veiði og jafnvel mokveiði.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Við skulum líta aðeins á netabátana. Grímsnes GK er að eltast við ufsann og það hefur gengið mjög vel. Sigvaldi skipstjóri og áhöfn hans á bátnum hafa látið sig hafa það að fara út í þessa blessuðu ótíð í veiðar og þær hafa bara gengið vel. Hefur báturinn landað 100 tonnum í sex róðrum og mest 31 tonn, af þessum afla er ufsi 79 tonn.

Maron GK er í þorskinum og kominn með 27 tonn í aðeins fimm róðrum.  Í janúar árið 2021 komst Maron GK í 23 róðra og landaði þá 118 tonnum. Erling KE er kominn með 25 tonn í tveimur róðrum en hafa ber í huga að það vantar afla inn á bátinn fyrir janúar, en árið 2021 var báturinn með 244 tonn. En við vitum hvað gerðist fyrir bátinn í janúar.

Hraunsvík GK var með 19,6 tonn í tveimur túrum og þessi afli fékkst í byrjun janúar en síðan réri báturinn ekki meira.  Halldór afi GK var með 16,7 tonn í átta róðrum.

Hjá dragnótabátunum var svo til það sama, mikið aflahrun og aflahæstur í janúar var Sigurfari GK með 45 tonn í sex róðrum.  Í janúar 2021 var Sigurfari GK með 103 tonn í 14 róðrum og var þá aflahæsti dragnótabáturinn á landinu. Benni Sæm GK með 43 tonn í sjö,  Siggi Bjarna GK með 30 tonn í sjö og Aðalbjörg RE sjö tonn í tveimur róðrum, en hann landaði í Sandgerði.

Hjá línubátunum voru stóru línubátarnir á sjó að mestu eða reyndu það en vegna veðurs þurftu þeir oft að stytta túrana sína og fara í land.  Páll Jónsson GK er með 331 tonn eftir fjóra túra og hann hefur landað þessum afla í fjórum höfnum.  Þorlákshöfn, Grindavík, Hafnarfirði og Grundarfirði. Sighvatur GK var með 319 tonn í fimm túrum,  Valdimar GK 274 tonn í þremur, Hrafn GK 218 tonn í þremur og öllum þeim afla var landað í Hafnarfirði.  Sighvatur GK landaði líka mestum hluta af aflanum sínum í Hafnarfirði, og skýrist það að mestu af þessum miklum brælum því sjógangurinn var það mikill að innsiglingnn til Grindavíkur varð ófær og því öruggara að sigla til Hafnarfjarðar.

Af minni bátunum eru ennþá nokkrir úti á landi, t.d Einhamarsbátarnir og var Auður Vésteins SU með 117 tonn í þrettán róðrum. Vésteinn GK var með 94 tonn í ellefu róðrum,  Hulda GK 89 tonn í níu róðrum, Gísli Súrsson GK 71 tonn í átta en báturinn fór að austan til Siglufjarðar og var planið að sigla þaðan inn í Breiðafjörðinn, en vegna veðurs hefur báturinn ekkert komist að norðan og suður.

Af þeim bátum sem róa héðan þá var veiðin ansi góð þá daga sem þeir komust á sjóinn og svo til mokveiði utan við Sandgerði.  Sævík GK er með 72 tonn í níu túrum, Margrét GK 68 tonn í átta,  Daðey GK 61 tonn í níu og Geirfugl GK 52 tonn í 10 túrum.  Hópsnes GK er á balalínu frá Skagaströnd og með 50 tonn í níu,  Dúddi Gísal GK 42 tonn í sjö og Addi Afi GK 19 tonn í þremur róðrum. Ragnar Alfreðs GK var með ellefu tonn í tveimur en hann er á balalínu frá Hvammstanga.

Togbátarnir hafa lítið getað aðhafst hérna fyrir sunnan og hafa því að mestu verið fyrir vestan.  Sóley Sigurjóns GK er búinn að eiga feikilega góðan janúar mánuð. Komin  í 612 tonn í fimm  túrum og mest 161 tonn í einni löndun. Hinn togari Nesfisks, Berglín GK, liggur í Njarðvíkurhöfn og hefur ekkert farið á sjóinn í janúar nema stuttan túr snemma á árinu sem var einungis tvö tonn.