Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Pistlar

Miðaldra  lýðræðisveisla
Föstudagur 4. mars 2022 kl. 08:14

Miðaldra lýðræðisveisla

Ég hef gaman af pólitík, en finnst hún vitlaus. Finnst að fólkið sem er tilbúið að fylgja eigin sannfæringu nái ekki árangri. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ fór fram um síðustu helgi. Svokölluð lýðræðisveisla. Alger endurnýjun er á lista flokksins fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar. Einungis leiðtoginn situr áfram. Fékk ekki mótframboð. Hinum bæjarfulltrúanum sem bauð sig fram var hafnað. Ellefu mjög frambærilegir einstaklingar voru í framboði fyrir flokkinn, sem nú á þrjá fulltrúa í bæjarstjórn. Kannski má segja fjóra, þar sem Frjálsa aflið hefur snúið heim aftur.  Að prófkjöri loknu liggur fyrir að fjórir miðaldra einstaklingar skipa fjögur efstu sæti flokksins. Tveir karlar, tvær konur. Lýðræðisveislan hefur talað. Frekar einsleitt ef þið spyrjið mig. Fyrir utan bæjarfulltrúann sem var hafnað má nánast segja að raðað hafi verið á listann eftir aldri. Elstu voru efstir, yngstu neðstir, sem ég leyfi mér að lesa þannig að ekki sé óskað eftir ungu fólki til forystu. Það er það sem prófkjörið segir. Tölurnar ljúga ekki. Útaf því má alveg deila um hvort prófkjör séu sú lýðræðisveisla sem flokkurinn heldur fram. Innsta klíkan, oft kölluð Bláa höndin, ræður úrslitunum. Skilaboðin ef þú nærð ekki árangri eru einföld. Þú ert ekki í klíkunni. Skilaboðin til unga fólksins. Frábært hjá þér. Varst að reyna í fyrsta skipti. Gengur betur næst. Lesist: „Ef þú heldur áfram að reyna, kemstu kannski í klíkuna“. Sjálfstæðisflokkurinn má þó eiga það, hann er eini flokkurinn sem gefur fólki tækifæri á að bjóða sig fram. Aðrir sleppa þeim millileik og láta klíkuna bara ráða.

Eitt af því sem þarf að sætta sig við þegar á sextugsaldurinn er komið, er að maður er ekki sexý lengur. Bara sorry. Alveg sama hvað fólk reynir að halda því fram að “50´s is the new 40´s og 60´s the new 50´s” og bla bla bla. Þetta er kjaftæði. Það er á ábyrgð okkar sem eldri erum að hvetja unga fólkið til forystu. Að koma þeim til forystu. Að byggja upp næstu kynslóð til að taka við.  Maður þarf ekki alltaf að gera allt sjálfur. Seppa tökunum og leyfa þeim yngri að taka við er ekki veikleikamerki, heldur þroska- og styrkleikamerki.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ellefu manns mynda bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Yngstu tveir bæjarfulltrúarnir eru fæddir 1982 og 1992. Báðir frá Samfylkingunni. Aðrir eru í flokki miðaldra og öldunga. Enginn bæjarfulltrúi er af erlendu bergi brotinn, þrátt fyrir að allt að fjórðungur íbúa sveitarfélagins séu það. Væri ekki rétt að innan bæjarstjórnar væru raddir sem skynjuðu samfélagið eins og það er? Að innan bæjarstjórnar væri fólk sem þekkir það að nýta grunnþjónustuna af eigin raun. Hvar er íþróttamaðurinn í bæjarstjórn? Er Reykjanesbær ekki íþróttabær?

Flokkar og framboð eru nú í dauðafæri að gefa ungu fólki tækifæri til forystu í Reykjanesbæ. Fólk fæðist ekki með reynslu, hún er áunnin. Ef fólk fær ekki tækifæri, fær það aldrei reynslu.  Það er ljóst að endurnýjun í bæjarstjórn verður mikil. Tveir bæjarfulltrúar farnir á þing og sögurnar segja þann þriðja á leið í stórt ríkisembætti á svæðinu. Ef svo fer fram sem horfir verður framboð fólks þvert á flokka, Ásbrúarlistinn, væntanlega kynntur til leiks undir lok mars. Hann gæti náð hreinum meirihluta. Flokkapólitík og sveitastjórnarmál eiga ekki samleið. Það er tímaskekkja.

Margeir Vilhjálmsson