Mannlíf

Skáldahópurinn Suss heldur stofnfund í Kviku
Mánudagur 9. nóvember 2026 kl. 18:03

Skáldahópurinn Suss heldur stofnfund í Kviku

Skáldahópurinn Suss heldur stofnfund og upplestur í menningarmiðstöðinni Kviku í Grindavík fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 17.30–19. Þar verður Guðbergur Bergsson heiðraður með upplestri úr verkum hans.

Að hópnum standa skáldin Kristrún Guðmundsdóttir, Sólmundur Friðriksson og Gunnhildur Þórðardóttir. Þau tengjast öll Suðurnesjum og vilja fá fleiri til liðs við sig.

Á stofnfundinum mun hvert þeirra lesa texta eftir Guðberg auk eigin ljóða. Guðbergur fæddist í Grindavík og er nafn hópsins sótt í sussið hans, að því er fram kemur í tilkynningu frá hópnum.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Kristrún er skáld og þýðandi, fædd í Keflavík árið 1953. Hún hefur sent frá sér fjölda ljóðabóka, skáldsögur, matreiðslubók og þýðingar. Hún hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2000. Nýjasta bók hennar, Appelsínugulur himinn yfir Austurbæjarskóla, kom út á þessu ári og er fyrsta barnabók hennar. Sagan fjallar um mikilvægi þess að börn fái næði og svigrúm til sköpunar.

Sólmundur fæddist á Stöðvarfirði árið 1967 og ólst þar upp. Hann er kennari og tónlistarmaður og hefur tekið þátt í ýmsum ljóðaverkefnum, meðal annars Skáldaskáp og ljóðahátíðinni Skáldasuði í Reykjanesbæ. Hann var bassaleikari og söngvari í hljómsveit Geirmundar Valtýssonar á árunum 1989–1994 og er félagi í karlakvartettnum Kóngum. Hann stefnir að útgáfu fyrstu ljóðabókar sinnar árið 2027.

Gunnhildur er myndlistarmaður, kennari og skáld, fædd í Keflavík árið 1979. Hún hefur sýnt verk sín hér á landi og erlendis og gefið út sjö ljóðabækur. Í verkum sínum fléttar hún gjarnan saman myndlist, ljóðlist og heimspekilegum vangaveltum um lífið, náttúruna og samfélagið. Hún stofnaði lista- og ljóðahátíðina Skáldasuð og ljóðaverkefnið Skáldaskáp.

Öll eru velkomin á stofnfundinn. Boðið verður upp á kaffi og piparkökur á meðan birgðir endast.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100