Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Óvænt stefnumót á Ljósanótt
Ritstjórn
Ritstjórn skrifar
föstudaginn 6. september 2019 kl. 04:40

Óvænt stefnumót á Ljósanótt

Ljósanótt í Reykjanesbæ fer fram í 20. sinn dagana 4.-8. september. Af því tilefni verða nýjar sýningar opnaðar í sölum Listasafns Reykjanesbæjar fimmtudaginn 5. september kl. 18.00. 

Safnið hefur lengi haft þann sið að vera alltaf með a.m.k. eina sýningu á Ljósanótt þar sem heimafólk er í fyrirrúmi.  Að þessu sinni er það sýningin „Óvænt stefnumót“ sem opnar í Duus Safnahúsum fimmtudaginn 5.september kl. 18.00.

Þarna eru leiddar saman 6 listakonur sem eiga það eitt sameiginlegt að hafa allar verið með einkasýningu í safninu einhvern tímann á síðustu 15 árum.  Verkin sem þær sýna eru unnin með fjölbreyttri tækni og hver um sig hefur valið sína eigin leið og sína eigin túlkun og afar spennandi að sjá hvernig stefnumótið heppnast.

Þær sem taka þátt í þessu verkefni eru: Gunnhildur Þórðardóttir, Inga Þórey Jóhannsdóttir, Kristín Rúnarsdóttir, Margrét Jónsdóttir, Sossa og Valgerður Guðlaugsdóttir.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024