Ný sýning opnar á Rokksafni Íslands: Úrklippubókasafn Kela
Rokksafn Íslands opnar nýja sýningu næstkomandi laugardag, 13. ágúst, kl.14:00. Nýja sýningin fjallar um Sævar Þorkel Jensson, betur þekktur sem Keli, og úrklippubókasafn hans en hann hefur safnað úrklippum og eiginhandaráritunum tónlistarfólks frá því að hann var ungur strákur.
Það væru ekki til neinar stjörnur ef aðdáendur væru ekki til. Oft er þetta sama fólkið, en alvöru safnarar eru samt fámennur hópur, sem hefur í gegnum aldirnar haldið til haga mörgu af því sem er til sýnis á söfnum um allan heim.
Safnarar á Íslandi safna ólíklegustu hlutum en það eru ekki margir sem eru jafn ákafir safnarar á sviði rokk-, popp- og hvers konar dægurtónlistar eins og Keli. Sævar Þorkell hefur safnað eiginhandaráritunum og úrklippum frá árinu 1964 þegar hann sá Hljóma fyrst á sviði. Keli á eitt stærsta úrklippusafn um dægurtónlist á Íslandi. Hann mætir gjarnan á tónleika með úrklippubók og fær viðkomandi tónlistarfólk til að rita nöfn sín í bókina. Honum er jafnan vel tekið og hefur safnað áritunum flestra poppara og rokkara landsins. Hann á líka eiginhandaráritanir heimsþekktra tónlistarmanna.
Úrklippubækur Kela geyma margskonar fróðleik og spanna dægurtónlistarsöguna í rúmlega hálfa öld. Bækurnar í dag eru rúmlega þrjú hundruð og fimmtíu talsins.
Keli á umtalsvert magn af úrklippum sem tengjast Bubba Morthens, Björk, Bríet, Helga Björns, GDRN, Jónasi Sig, Stefáni Jakobssyni, Hjálmum, Baggalúti og John Grant, svo fátt eitt sé nefnt, en Keli verður með bækur sínar til sýnis á Rokksafni Íslands á meðan sýningin stendur.
Opnun sýningarinnar hefst kl. 14:00. Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, opnar sýninguna formlega, Jónatan Garðarsson, handritshöfundur sýningarinnar, heldur stutta ræðu um Kela, tónlistaratriði verður á sviði og í boði verða léttar veitingar fyrir gesti opnunarinnar.
Enginn aðgangseyrir verður á Rokksafn Íslands þennan dag og eru allir velkomnir.