Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Finnskir gestir í Reykjanesbæ: Krafturinn í bæjarfélaginu vekur athygli
Föstudagur 2. apríl 2004 kl. 11:32

Finnskir gestir í Reykjanesbæ: Krafturinn í bæjarfélaginu vekur athygli

Menningar-, íþrótta- og tómstundasvið Reykjanesbæjar (MÍT) fékk á dögunum til sín góða gesti frá vinabænum Kerava í Finnlandi sem hingað komu m.a. til þess að kynna sér starfsemi Reykjanesbæjar á sviði íþrótta-tómstunda- og menningarmála sem og stjórnsýslu- ferða- og markaðsmála.
 Markmið heimsóknarinnar var auk þess að gera samanburð á starfsemi bæjarfélaganna og var þemað “learning by doing”.
Fulltrúar Kerava voru Jarmo Leskinen fulltrúi íþróttasviðs Kerava og Petri Harkonen framkvæmdastjóri þróunarsviðs og staðgengill bæjarstóra.
Jarmo er ekki ókunnugur íþrótta- og tómstundastarfsemi í Reykjanesbæ þar sem hann hefur tekið þátt í fjölmörgum vinabæjarmótum bæjarfélaganna og heimsótti hann m.a. Ísland árið 1986 í þeim tilgangi. Allt frá árinu 1973 hafa vinabæirnir Hjörring í Danmörku, Kristiansand í Noregi, Trollhattan í Svíþjóð,  Kerava og Reykjanesbær haft með sér samskipti á sviði íþrótta þar sem 7 drengir og 7 stúlkur á aldrinum 14-16 ára keppa í mismunandi íþróttagreinum ár hvert.
Þess má geta að í sumar fer keppnin fram í vinabænum Trollhattan og er keppnisgreinin körfubolti.
Þeir félagar fengu að kynnast því helsta sem var á döfinni á meðan á heimsókninni stóð og sóttu þeir m.a. körfuboltaleiki í úrslitarimmu karla og kvenna á Íslandsmótinu og sáu stelpurnar í Keflavík hampa titlinum. Eins skoðuðu þeir íþróttamannvirki bæjarins, söfn, félagsmiðstöðvar og skóla auk þess sem þeir fengu kynningar á verkefnum hjá umhverfis- og skipulagssviði og fjármálasviði. Þeir sóttu vikulegan fund með framkvæmdastjóra og forstöðumönnum MÍT sviðs þar sem allir forstöðumenn kynntu sig og starf sitt fyrir gestunum og svöruðu fjölmörgum spurningum.
Hver er tilgangur heimsóknarinnar?
Petri: Tilgangur heimsóknarinnar er að gera samanburð á rekstri bæjarfélaganna en bæði taka þau þátt í svokölluðu Bertelsmanns prófi sem felur í sér samanburð á mörgum þáttum í rekstri og þjónustu bæjarfélaga.  Við vildum sjá hvernig Reykjanesbær er að gera hlutina og skoða samvinnu milli deilda. Eins vildum við segja frá því hvernig við stöndum að okkar þjónustu og markaðssetningu bæjarins.
Hvað var það helsta sem vakti athygli ykkar?
Petri: Krafturinn sem virðist svo auðsjáanlegu alls staðar í bæjarfélaginu. Svo fannst mér athyglisvert að heyra hversu fljótt hægt er að koma góðum hugmyndum í framkvæmd. Ferlið er auðveldara hér en hjá okkur, þar sem margir flokkar eru í stjórn  (alls 7) og eins eru okkur sett ýmis takmörk með lögum og reglugerðum.
Á hvaða sviðum teljið þið ykkur skara fram úr?
Petri: Ég myndi segja að það væri í markaðssetningu atvinnutækifæra en þau eru að mínu mati vel skipulögð í Kerava. Við höfum sérstakan starfsmann í því verkefni og auk þess marga tengiliði frá atvinnulífinu, sem skipta með sér verkum tímabundið eftir því um hvers konar atvinnustarfsemi er að ræða.
Nýleg óháð könnun í Finnlandi sýndi að fyrirtækjum þótti Kerava fýsilegasti kosturinn til atvinnurekstrar á Helsinkisvæðinu. En við erum mjög spenntir að sjá hvernig gengur hjá ykkur með víkingaskipið Íslending og víkingaþorpið sem þar verður sett upp. Þetta er hugmynd sem virðist vera mikið atvinnutækifæri fyrir allt svæðið.
Hvað erum við hjá Reykjanesbæ að gera vel að ykkar áliti?
Petri: Þið getið verið ánægð með þá frábæru íþróttaaðstöðu sem þið bjóðið upp á , en til samanburðar má nefna að við höfum eina sundlaug fyrir 31 þúsund íbúa í Kerava en þið hafið fjórar laugar fyrir 11 þúsund íbúa. Eins eruð þið að gera vel í stuðningi við íþrótta- og tómstundafélög, bæði í styrkjum og eins með gjaldfrjálsum afnotum af húsnæði. Í Kerava þurfa t.d. íþróttafélög að greiða fyrir alla notkun í mannvirkjunum og þetta er að sliga mörg þeirra fjárhagslega. Svo fannst mér athyglisvert hvernig þið samtvinnið íþróttir, menningu og tómstundamál allra aldurshópa. Frístundaskólinn og Tómstundabandalagið er líka eitthvað sem við viljum skoða hjá okkur.
Jarmo: Við vildum einmitt skoða og bera saman það sem þið eruð að gera fyrir íþróttafélög því það er miklu betra en hjá okkur. Rekstur íþróttamála hjá Kerava er aðeins 0,95% af heildarfjárhagsáætlun og því höfum við ekki úr eins miklu að moða.

Jarmo og Petri eru sammála um það að vandamálin eru mjög svipuð í rekstri bæjarfélaganna og mikilvægt sé að skoða styrkleika hvors annars og yfirfæra þá til gagns. Heimsókn þeirra er liður í auknum samskiptum milli vinabæja sem hafa mikið verið rædd á sameiginlegum fundum í tengslum við íþróttakeppnirnar, en enginn hafði tekið frumkvæði, þar til nú að bæjarstjóri Reykjanesbæjar bauð þeim í heimsókn að tillögu Stefáns Bjarkasonar framkvæmdastjóri MÍT. Fyrir það vildu þeir Jarmo og Petri þakka kærlega fyrir.
Jarmo: Við höfum átt í samskiptum vegna vinabæjarmóta í íþróttum og því tímabært að auka samvinnuna enn frekar. Við bjóðum nú fulltrúum Reykjanesbæjar velkomna til okkar og vonum að þeir geti nýtt sér eitthvað af því sem við erum að gera í Kerava.
Petri: Við viljum koma á framfæri þakklæti til allra starfsmanna bæjarins fyrir að taka á móti okkur og funda með okkur. Vonandi getum við endurgoldið gestrisni ykkar þó síðar verði. Kannski gott fyrir hvítlauksunnendur að vita að við höldum okkar árlegu hvítlaukshátíð í lok ágúst. Kerava er orðið heimsfrægt fyrir þennan viðburð þar sem m.a er hægt að fá að smakka á hvítlaus-ís og hvítlauks-bjór !!!

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024