Íþróttir

Þunnur hópur Grindvíkinga gegn Val í 32-liða úrlsitum bikarsins í dag
Frá leik Grindavíkur og Njarðvíkur í Lengjudeildinni í fyrra. Grindvíkingurinn Símon Logi Thasapong þarna að etja kappi við sína fyrrum liðsfélaga.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
laugardaginn 19. apríl 2025 kl. 09:34

Þunnur hópur Grindvíkinga gegn Val í 32-liða úrlsitum bikarsins í dag

2. flokkur í æfingaferð á Spáni, flug fellt niður

Grindavík mætir liði Valsmanna í dag í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla og fer leikurinn fram á gervigrasvellinum í Reykjanesbæ og hefst kl. 14:00. Lið Grindvíkinga verður þunnskipað þar sem 2. flokkur félagsins er í æfingaferð á Spáni og flugið heim breyttist.

Sigurður Óli Þorleifsson er varaformaður knattspyrnudeildar Umfg.

„Ertu ekki skráður í Grindavík,“ var fyrsta spurning Sigga Óla til blaðamanns. Því miður er staðan ekki þannig, síðustu leikirnir fóru fram undir merkjum Gróttu.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

„Þarna fór líklega síðasta tækifærið þitt á glæstum atvinnumannsferli,“ sagði Siggi Óli.

Verður fróðlegt að sjá hvaða leikmenn verða dregnir á flot í þessum mikilvæga bikarleik. Það kæmi mjög á óvart ef liðsstjórinn og köggullinn Leifur Guðjónsson, verður ekki í búningi og eins hljóta líkurnar að vera meiri en minni á að formaðurinn Haukur Guðberg Einarsson verði í búningi.

Hljómahöll
Hljómahöll