Öflugur sigur Grindvíkinga á Val
Keflvíkingar fóru illa með Blika
Grindvíkinga lögðu Val 99:92 í háspennuleik sem fór fram í HS Orkuhöllinni í Grindavík í kvöld. Gestirnir leiddu með tólf stigum í hálfleik en heimamenn sýndu frábæran karakter, snéru leiknum sér í hag og unnu vel fyrir mikilvægum sigri sem kemur þeim upp fyrir Val í fjórða sæti Subway-deildar karla í körfuknattleik. Eins tóku Keflvíkingar á móti Blikum í Blue-höllinni og sigruðu helst til auðveldlega, eða 126:80.
Eftir leiki kvöldsins eru þrjú Suðurnesjalið í fjórum efstu sætum Subway-deildar karla. Þór Þorlákshöfn er á topnum með 24 stig, Grindavík sem fyrr segir í fjórða sæti með átján stig, Keflavík er í þriðja sæti með 22 stig og Njarðvík í öðru sæti einnig með 22 stig en eiga leik til góða og geta því með sigri komist upp að hlið Þórs á toppinn.
Grindavík - Valur 99:92
(17:25, 22:26, 37:24, 23:17)
Leikurinn var í hörkujafnvægi en þegar tók að líða á fyrsta leikhluta náðu Valsmenn að rífa sig aðeins upp fyrir heimamenn og náðu átta stiga forystu (17:25). Annar leikhluti hélt áfram að vera jafnræði á liðunum og Grindvíkingar minnkuðu muninn (22:25) en þó hallaði aðeins á Grindvíkinga eftir því sem leið á leikhlutann og Valur fór með tólf stig inn í hálfleikinn (39:51).
Það voru hins vegar baráttuglaðir Grindvíkingar sem mættu til seinni hálfleiks og með geggjuðu áhlaupi náðu þeir forystu þegar þriðji leikhluti var hálfnaður (63:62) og þeir leiddu með einu stigi fyrir fjórða leikhluta (76:75). Lokakaflinn var svo sannkallaður spennutryllir en Valsarar gerðu fyrstu stigin þegar þeir settu niður þrist og náðu forystu á ný (76:78). Naor Sharabani svaraði með öðrum þristi (79:78) og þótt engu mætti muna þá héldu heimamenn forystunni til leiksloka utan þess að Valur jafnaði í stöðunni 84:84. Lokatölur 99:92 í mögnuðum leik.

Frammistaða Grindvíkinga: Elbert Clark Matthews 27/4 fráköst/6 stoðsendingar, Naor Sharabani 23/6 stoðsendingar, Kristinn Pálsson 17, Ivan Aurrecoechea Alcolado 14/7 fráköst, Ólafur Ólafsson 13/8 fráköst, Javier Valeiras Creus 5/8 fráköst, Kristófer Breki Gylfason 0/4 fráköst, Magnús Engill Valgeirsson 0, Hafliði Ottó Róbertsson 0, Hinrik Hrafn Bergsson 0, Björgvin Hafþór Ríkharðsson 0.
Keflavík - Breiðablik 126:80
(35:27, 39:22, 24:17, 28:14)
Það má segja að leikur Keflavíkur og Breiðabliks hafi aldrei náð sama spennustigi og leikur Grindavíkur og Vals en heimamenn sýndu enga gestrisni og völtuðu yfir gestina með öflugum sóknarleik í fyrri hálfleik. Annar leikhluti gerði út um vonir Blika að fá eitthvað út úr leiknum en þá juku Keflvíkingar muninn úr átta í 25 stig (74:49). Að spila seinni hálfleikinn var eiginlega bara formsatriði og Keflvíkingar bættu í forskotið jafnt og þétt þar til að lokum var 46 stiga sigur í höfn.

Frammistaða Keflvíkinga: Dominykas Milka 30/9 fráköst, Darius Tarvydas 29/11 fráköst/5 stoðsendingar, Jaka Brodnik 18, Valur Orri Valsson 12/8 fráköst/7 stoðsendingar, Halldór Garðar Hermannsson 10/4 fráköst/8 stoðsendingar, Hörður Axel Vilhjálmsson 9/9 fráköst/12 stoðsendingar, Ágúst Orrason 9, Frosti Sigurðsson 4, Arnór Sveinsson 3/5 fráköst, Nikola Orelj 2.