Oddaleikur í Grindavík eftir sigur Vals í fjórða leiknum
Grindvíkingum tókst ekki að ýta Valsmönnum út úr úrslitakeppni Bónus deild karla í körfubolta en Hlíðarendadrengir fögnuðu sigri á heimavelli í fjórða leik liðanna í kvöld. Lokatölur 85-79.
Leikurinn var spennandi, sérstaklega á lokamínútunum og heimamenn náðu með harðfylgni að tryggja sér sigurinn á síðustu mínútunni.
„Keflvíski“ Valsmaðurinn, Igor Maric var í stuði og setti niður fimm þrista. Hinn fertugi Króati, elsti leikmaðurinn í deildinni, skoraði 19 stig og var Grindvíkingum erfiður. Valsmenn voru í forystuhlutverkinu megnið af leiknum þó munurinn væri aldrei mikill megnið af tímanum en þó mest 16 stig. Grindvíkingar komu sterkir inn í lokin þegar þeir minnkuðu muninn í eitt stig, 80-79 þegar 1,40 mínúta var eftir en náðu ekki að klára verkefnið að vinna fjórða leikinn og sópa Valsmönnum út. Callum Lawson skoraði fimm síðustu stig Vals á lokamínútunni, fyrst með ótrúlegri heppniskörfu og síðan með þremur vítaskotum.
Úrslitaleikurinn verður á miðvikudag og það verður áhugverð viðureign sem fram fer í Grindavík.
Valur-Grindavík 85-79 (23-18, 24-21, 22-24, 16-16)
Valur: Igor Maric 19, Antonio Keyshawn Woods 17/6 fráköst, Callum Reese Lawson 15/4 fráköst, Hjálmar Stefánsson 15/4 fráköst, Kristófer Acox 10/14 fráköst, Kári Jónsson 9/5 fráköst/6 stoðsendingar, Ástþór Atli Svalason 0, Veigar Örn Svavarsson 0, Orri Már Svavarsson 0, Karl Kristján Sigurðarson 0, Gabríel Kazlauskas Ágústsson 0, Lazar Nikolic 0.
Grindavík: Jeremy Raymon Pargo 22/5 stoðsendingar, Deandre Donte Kane 20/9 fráköst, Ólafur Ólafsson 12/10 fráköst, Jordan Semple 11/13 fráköst, Kristófer Breki Gylfason 6, Ragnar Örn Bragason 6, Arnór Tristan Helgason 2, Patrekur Atlason 0, Daniel Mortensen 0, Unnsteinn Rúnar Kárason 0, Nökkvi Már Nökkvason 0, Valur Orri Valsson 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Bjarki Þór Davíðsson, Davíð Kristján Hreiðarsson
Áhorfendur: 1423
Viðureign: 2-2









