Íþróttir

Lengjudeildin: Fyrsti sigur Njarðvíkur í höfn og Grindavík bjargaði stigi
Föstudagur 8. maí 2026 kl. 22:19

Lengjudeildin: Fyrsti sigur Njarðvíkur í höfn og Grindavík bjargaði stigi

Njarðvíkingar fögnuðu sínum fyrsta sigri í Lengjudeildinni í knattspyrnu karla í sumar þegar þeir lögðu Fylki að velli með tveimur mörkum gegn engu í Njarðvík í kvöld. Rautt spjald á Fylkismenn snemma leiks varð gestunum dýrkeypt.

Leikurinn fór rólega af stað en á 26. mínútu dró til tíðinda. Birkir Eyþórsson, leikmaður Fylkis, fékk þá að líta sitt annað gula spjald á stuttum tíma fyrir glannalegt brot á miðjum vellinum. Fylkismenn þurftu því að spila rúmlega klukkutíma manni færri.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Njarðvíkingar nýttu sér liðsmuninn undir lok fyrri hálfleiks. Á 44. mínútu kom Bragi Karl Bjarkason heimamönnum yfir eftir sendingu frá Eiði Aroni Sigurbjörnssyni. Leandro Fernandes sýndi mikið snarræði með því að hleypa boltanum í gegnum klofið á sér, beint í hlaupaleið Braga sem kláraði færið vel í nærhornið.

Fylkismenn reyndu að hressa upp á sitt lið en það voru hins vegar Njarðvíkingar sem bættu við marki. Á 67. mínútu tók Arnleifur Hjörleifsson hárnákvæma hornspyrnu sem fann kollinn á Sigurjóni Má Markússyni. Sigurjón gerði engin mistök og stýrði boltanum í netið, 2-0. Hann tók svo nokkur dansspor út að hliðarlínu og var fagnað vel af sínum mönnum.

Fylkir reyndi að klóra í bakkann undir lokin og vildu meðal annars fá vítaspyrnu á 82. mínútu, en dómarinn var ekki á sama máli. Njarðvík sigldi sigrinum örugglega í höfn og hélt hreinu.

Niðurstaða: Mikilvæg þrjú stig hjá Njarðvík í hús. ( Sjá myndasafn úr leiknum neðan við fréttina.)

Grindvíkingar björguðu stigi á lokamínútunum gegn ÍR

Það var dramatík fram á síðustu stundu þegar ÍR og Grindavík mættust í Lengjudeildinni í knattspyrnu karla í kvöld. Þrátt fyrir að ÍR-ingar hafi verið sterkari aðilinn stóran hluta leiksins, tókst seigum Grindvíkingum að vinna upp tveggja marka forystu og tryggja sér 2-2 jafntefli með marki á lokamínútunni.

Heimamenn í ÍR mættu af miklum krafti og þurftu ekki að bíða lengi eftir verðlaunum. Strax á 7. mínútu skoraði Víðir Freyr Ívarsson laglegt mark þegar hann hirti upp frákast og þrumaði boltanum í bláhornið.

ÍR-ingar héldu áfram að pressa og á 24. mínútu tvöfölduðu þeir forystuna. Emil Nói Sigurhjartarson tók þá aukaspyrnu rétt utan teigs og skoraði með glæsilegu skoti í nærhornið, framhjá Hjörvari í marki Grindavíkur sem átti ekki möguleika. Grindvíkingar fengu dauðafæri til að minnka muninn fyrir hlé en Vilhelm í marki ÍR stóð vaktina vel.

Síðari hálfleikur var mun opnari. Grindavík fékk líflínu á 63. mínútu þegar André Musa braut á Haraldi Björgvini innan teigs. Dæmd var vítaspyrna og markahundurinn Rafael Victor steig á punktinn. Hann afgreiddi boltann af öryggi í hornið og minnkaði muninn í 2-1.

ÍR-ingar voru nálægt því að gera út um leikinn stuttu síðar þegar Bergvin Fannar átti þrumuskot sem fór í slána og yfir. Við það færðist trú í lið Grindavíkur sem stýrði leiknum meira undir lokin án þess þó að skapa sér mörg hrein færi.

Þegar allt stefndi í sigur heimamanna átti sér stað sofandaháttur í vörn ÍR. Á 89. mínútu tóku Grindvíkingar langt innkast sem endaði með því að boltinn féll fyrir fætur varamannsins Lárusar Orra Ólafssonar. Hann hikaði ekki og skaut boltanum í netið af um 14 metra færi við gríðarlegan fögnuð gestanna.

Njarðvík - Fylkir 2:0 / Lengjudeild karla 8. maí 2026

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar