HSS
HSS

Íþróttir

Jafntefli hjá Njarðvík og Keflavík
Úr viðureign Keflavíkur og Fylkis í kvöld. VF/Hilmar Bragi
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
mánudaginn 9. júní 2025 kl. 21:21

Jafntefli hjá Njarðvík og Keflavík

Annað tap Þróttar í röð en Víðir með sigur

Sjöundu umferð Lengjudeildar karla lauk í kvöld en þá voru liðin frá Reykjanesbæ að keppa. Bæði gerðu þau jafntefli, Njarðvík á útivelli gegn Þrótti en Keflavík þurfti að sætta sig við jafntefli á heimavelli gegn Fylki.
Í 2. deildinni tapaði Þróttur á útivelli gegn Víkingum í Ólafsvík en Víðir vann Dalvík/Reyni á heimavelli. Reynir vann Hvíta riddarann í 3. deildinni.

Lengjudeild karla

Jafntefli í spennuleik í Keflavík

Keflavík og Fylkir skildu jöfn, 1-1, þegar liðin áttust við í Lengjudeild karla á HS Orku vellinum í kvöld.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Heimamenn komust yfir snemma leiks þegar Muhamed Alghoul skoraði með aukaspyrnu í 4. mínútu, en Fylkismenn jöfnuðu undir lokin þegar Theodór Ingi Óskarsson potaði boltanum í netið eftir fyrirgjöf í teig á 87. mínútu.

Fylkir sótti hart í lokin og áttu fleiri færi til að tryggja sér öll stigin, en markvörður Keflavíkur, Sindri Kristinn Ólafsson, sá til þess að fleiri mörk yrðu ekki skoruð í sitt mark.

Með úrslitunum situr Keflavík í 6. sæti deildarinnar með 10 stig.

Leikurinn bauð upp á spennandi atvik og mikla baráttu, en skiptist í kafla þar sem bæði lið áttu sín tækifæri. Þrátt fyrir að heimamenn hafi verið yfir í rúman klukkutíma dugði það ekki til sigurs að þessu sinni.

Góð endurkoma hjá Njarðvík

Þróttur og Njarðvík mættust í jöfnum og æsilegum leik í Lengjudeild karla í kvöld sem endaði með 2-2 jafntefli. Heimamenn komust yfir í fyrri hálfleik með marki frá Liam Daða Jeffs og bættu við öðru í upphafi seinni hálfleiks þegar Kári Kristjánsson þrumaði aukaspyrnu undir vegginn og í netið.

Njarðvíkingar svöruðu þó af krafti. Oumar Diouck minnkaði muninn snemma í seinni hálfleik og Tómas Bjarki Jónsson jafnaði metin á 83. mínútu eftir flotta sókn. Lokamínútur leiksins voru æsilegar, þar sem bæði lið áttu sín færi, en hvorugu tókst að tryggja sigurinn.

Úrslitin þýða að liðin deila með sér stigunum eftir leik þar sem hiti, barátta og nokkrar umdeildar dómaraákvarðanir einkenndu síðari hálfleikinn.

Njarðvík er í 2. sæti deildarinnar með 13 stig, Keflavík í 6. sæti með 10 stig eins og Grindavík sem er í 7. sæti. Keflavík og Grindavík eiga inni viðureign sín á milli en leiknum var frestað vegna U-19 landsleiks.

2. deild karla

Víkingur Ólafsvík - Þróttur Vogum 2-0

Tvö töp Vogamanna og þeir dottnir í 2. sæti 2. deildar.

Víðir - Dalvík/Reynir 1-0

Daniel Beneitez Fidalgo skoraði sigurmark Víðis á fjórðu mínútu uppbótartíma.

3. deild karla

Reynir - Hvíti riddarinn 1-0

Ólafur Darri Sigurjónsson með mark Reynismanna.

Keflavík - Fylkir (1:1) // Lengjudeild karla 9. júní 2025