Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Hermann Hreiðarsson tekur við liði Þróttar Vogum í 2. deild
Föstudagur 10. júlí 2020 kl. 09:40

Hermann Hreiðarsson tekur við liði Þróttar Vogum í 2. deild

Knattspyrnudeild Þróttar hefur gett samning við Hermann Hreiðarsson um að taka við þjálfun meistaraflokk Þróttar. Hermann á langan feril að baki sem leikmaður og spilaði á sínum tíma tæplega 500 leiki fyrir lið á Englandi, á að baki 89 leiki fyrir A landslið Íslands og var hann fyrirliði í 16 þeirra. Síðustu ár hefur hann komið að þjálfun, fyrst hjá ÍBV og nú síðast aðstoðarþjálfari Southend United.

Þá verður Andy Pew áfram spilandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks, hefur Andy stýrt liðinu í síðustu tveimur leikjum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Við erum mjög ánægð með þessa ráðningu. Það fer gott orð af Hermanni sem er góður þjálfari. Stemmning, reynsla og gæði er eitt af því sem hann er þekktur fyrir, það mun hjálpa okkur í því verkefni að festa okkur í sessi í 2. deildinni og byggja upp lið til framtíðar,“ segir Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri Þróttar.

„Þetta verður krefjandi verkefni en jafnframt spennandi og skemmtilegt. Ég er þakklátur fyrir tækifærið sem Þróttur Vogum er að veita mér. Ég er að taka við góðu búi frá Brynjari Gestssyni og núna er það mitt að halda áfram á sömu braut, byggja ofan á það sem hefur verið gert í vetur og síðustu leikjum. Leikmannahópurinn er gríðarlega spennandi og mikil gæði í hópnum. Eftir að hafa tekið fundi með Marteini og öðrum sem starfa fyrir félagið, þessi brennandi ástríða sem fólkið hefur fyrir félaginu þá varð ég að fá að vera þátttakandi. Nú er bara að vona að allir bæjarbúar snúi bökum saman og geri allt til að mynda stemmningu til að hjálpa liðinu í sumar,“ segir Hermann Hreiðarsson nýr þjálfari Þróttar Vogum.