Bygg
Bygg

Íþróttir

Grindavík/Njarðvík á siglingu en ekkert gengur hjá Keflavíkurkonum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 29. maí 2025 kl. 14:53

Grindavík/Njarðvík á siglingu en ekkert gengur hjá Keflavíkurkonum

Á meðan lítið gengur hjá Keflavík í Lengjudeild kvenna gengur nágrönnum þeirra, Grindavík/Njarðvík mun betur. Það síðarnefnda vann þriðja sigurinn og er í 3. sæti en Keflavíkurkonur eru við botn deildarinnar, í 8.-9. sæti, eftir tap í gær. Keflavík var spáð efsta sæti deildarinnar í upphafi en gengið hefur verið mjög slakt.

Keflavík tapaði með einu marki og ef ekki hefði verið fyrir stórleik Önnu Arnarsdóttur í markinu hefði tapið getað orðið stærra. Valgerður Lilja Arnarsdóttir skoraði sigurmark gestanna á 83. mínútu.

Grindavík/Njarðvík fór í Hafnarfjörðinn og vann 1-2 sigur á Haukum. Brookelynn Paige Entz skoraði bæði mörkin á 64. og 69. mínútu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Staðan.