Grétar Einarsson látinn
Grétar Einarsson fv. knattspyrnumaður með Víði Garði féll frá þann 16. september sl. eftir harða en skammvinna baráttu við alvarleg veikindi. Frá þessu er greint á Facebooksíðu Knattsptrnufélasins Víðis.
„Grétar er goðsögn hjá Víði Garði. Hann hóf ferilinn með Víði og var hluti af gullaldarliði Víðis sem spilaði í efstu deild árin 1985 til 1987 og 1991 og fór alla leið í bikarúrslit árið 1987.
Grétar er leikjahæsti leikmaður Víðis í efstu deild (ásamt Vilbergi Þorvaldssyni) með 71 leik og hefur jafnframt skorað flest mörk fyrir Víði í efstu deild, 18 talsins. Á ferli sínum lék Grétar alls 323 leiki og skoraði 159 mörk fyrir Víði. Grétar lék einnig með Keflavík, FH og Grindavík og spilaði 3 A-landsleiki.
Eftir að Grétar hætti að spila með meistaraflokki var hann aðstoðarþjálfari hjá liðinu og sat í stjórn félagsins í fjölda ára, bæði aðalstjórn og unglingaráði.
Skórnir voru samt alls ekkert komnir á hilluna því Grétar spilaði með Old Boys liði Keflavíkur/Víðis og vann nokkra Íslandsmeistaratitla með þeim.
Grétar Einarsson var frábær liðsmaður sem allir vildu hafa í sínu liði. Hann hafði mikið keppnisskap og sigurvilja og var mikill markaskorari. Það var líka alltaf stutt í grínið hjá Grétari og það var gaman að vera í kringum hann.
Knattspyrnufélagið Víðir Garði vottar fjölskyldu og vinum Grétars sínar dýpstu samúðarkveðjur.
Minningin um frábæran leikmann og góðan dreng lifir.
Hvíldu í friði Grétar,“ segir á síðu Víðismanna.