Bygg Asparlaut
Bygg Asparlaut

Íþróttir

Elvar magnaður með sigurkörfuna gegn Litháen
Föstudagur 27. febrúar 2026 kl. 22:42

Elvar magnaður með sigurkörfuna gegn Litháen

Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson skoraði sigurkörfu Íslands gegn Litháen í leik liðanna í undankeppni Evrópukeppninnar í körfubolta í Laugardalshöll í kvöld. Elvar Már átti magnaðan leik og skoraði 34 stig í 86-85 sigri Íslands.

Ísland var alls ekki að finna taktinn í fyrstu þremur leikhlutunum og þegar sjö mínútur voru eftir í lokaleikhlutanum leiddi Litháen með 21 stigi, 56-77. Þá var eins og Ísland færi í annan gír og með ótrúlegri frammistöðu liðsins með Elvar Má í fararbroddi, sem skoraði fjórar þriggja stiga körfur í leikhlutanum, tókst liðinu að knýja fram sigur með síðasta skoti leiksins. Það átti einmitt Njarðvíkingurinn Elvar en hann fékk boltann þegar 4 sekúndur voru til leiksloka, hann lék á varnarmann Litháa og setti boltann ofan í körfu „á annarri löppinni“ og tryggði Íslandi ótrúlegan sigur 86-85.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir