Bygg
Bygg

Íþróttir

Daníel Guðni lætur af störfum sem þjálfari Grindavíkur
Samstarfi körfuknattleiksdeildar Grindavíkur og Daníels Guðna Guðmundssonar er lokið og Daníel er hættur sem þjálfari karlaliðs félagsins. Ljósmynd: Ingibergur Þór Jónasson
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
þriðjudaginn 22. febrúar 2022 kl. 09:35

Daníel Guðni lætur af störfum sem þjálfari Grindavíkur

Stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur hefur ákveðið að ljúka samstarfi sínu við Daníel Guðna Guðmundsson og hefur hann látið af störfum sem þjálfari karlaliðs Grindavíkur í Subway-deild karla. Karlalið Grindavíkur er í fjötta sæti deildarinnar að loknum sautján umferðum.

Jóhann Þór Ólafsson mun stýra æfingum hjá Grindavík næstu daga þar til að ákveðið verður hver muni stýra liðinu út leiktíðina.

„Þetta var mjög erfið ákvörðun og síður en svo léttvæg þar sem við kunnum einstaklega vel við Daníel. Það var einhugur hjá stjórn að gera breytingu á þessum tímapunkti,“ segir Ingibergur Þór Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Daníel Guðni tók við liði Grindavíkur fyrir tímabilið 2019/2020 en hann hafði þá áður starfað sem aðstoðarþjálfari liðsins en einnig verið aðalþjálfari hjá kvennaliði félagsins. Undir stjórn Daníels fór Grindavík í bikarúrslit vorið 2020 en tapaði í úrslitaleik fyrir Stjörnunni. Heimsfaraldur hefur sett sitt mark á þjálfaratíð Daníels hjá Grindavík. Tímabilið 2019/2020 endaði Grindavík í áttunda sæti í deildinni en úrslitakeppnin var blásin af. Í fyrra hafnaði Grindavík í sjötta sæti í deildinni og féll úr leik í átta liða úrslitum í úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn.

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur vill koma á framfæri þökkum til Daníels Guðna fyrir hans framlag til félagsins á undanförum árum og óskar honum alls hins besta í framtíðinni segir í tilkynningu körfuknattleiksdeildarinnar.

Tengdar fréttir