Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Basile skiptir yfir í Grindavík
Dedrick Deon Basile klæðist gulu á næstu leiktíð. Mynd/Facebook-síða körfuknattleiksdeildar UMFG
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 17. maí 2023 kl. 11:47

Basile skiptir yfir í Grindavík

Grindavík hefur samið við leikstjórnandann Dedrick Deon Basile um að leika með félaginu á næsta tímabili í Subway-deild karla. Basile er íslenskum körfuboltaáhugamönnum að góðu kunnur enda verið einn besti leikmaður Subway-deildarinnar undanfarin ár.

Basile hefur verið einn af lykilmönnum Njarðvíkur síðustu tvö tímabil og var með 19,8 stig og 7,3 stoðsendingar að meðaltali í leik í vetur. Basile er frábær leikstjórnandi en jafnframt mjög öflugur varnarmaður. Hann lék með Þór Akureyri tímabilið 2020–2021 sem var hans fyrsta tímabil hér á landi.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Við erum stolt af því að fá Dedrick Deon Basile til liðs við Grindavík fyrir komandi tímabil. Basile hefur sannað með frammistöðu sinni að hann er einn af bestu leikmönnum deildarinnar og það er hvalreki fyrir Grindavík að fá þennan öfluga leikstjórnanda til félagsins. Með komu hans getum við svo sannarlega sett stefnuna hátt á næsta tímabili,“ segir Ingibergur Þór Jónasson, formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur.

Grindavík hefur nú þegar samið við DeAndre Kane og Daniel Mortensen um að leika með félaginu á næstu leiktíð. Leikmannahópur Grindavíkur fyrir næsta tímabil í Subway-deild karla er því farinn að taka á sig mynd.

Byggt á færstu körfuknattleiksdeildar UMFG á Facebook.