Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Veðurhamur á Suðurnesjum
Frá björgunaraðgerðum í Reykjanesbæ í kvöld. VF-mynd: Hilmar Bragi
Sunnudagur 30. nóvember 2014 kl. 21:31

Veðurhamur á Suðurnesjum

Einna verst er ástandið á Suðurnesjum í þeim veðurham sem nú gengur yfir landið. Þar voru á þriðja tug óleystra verkefna klukkan 21:00 og hefur Slökkvilið Grindavíkur verið kallað til aðstoðar 70 björgunarsveitamönnum sem eru úti.

Að venju hafa verkefnin verið af ýmsum toga, mikið er um brotna glugga og hurðir sem hafa fokið upp. Skúrar fjúka, þakplötur og klæðingar losna, sólpallar og girðingar fara af stað og tré falla. Ekki er þó vitað um stórtjón á þessari stundu þótt ljóst sé að samanlagt tjón af völdum veðursins er töluvert.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024