SSS Uppb.sjó
SSS Uppb.sjó

Fréttir

Íbúar Grindavíkur krefjast endurreisnar: „Treystið okkur fyrir eigin lífi“
Frá fundinum í Grindavík. Myndir: grindavik.is
Miðvikudagur 22. apríl 2026 kl. 22:30

Íbúar Grindavíkur krefjast endurreisnar: „Treystið okkur fyrir eigin lífi“

Á almennum íbúafundi í Grindavík þann 22. apríl 2026 var samþykkt hörð ályktun þar sem stjórnvöld eru hvött til að hætta „forræðishyggju“ og standa ekki í vegi fyrir því að fólk snúi aftur heim. Íbúar senda skýr skilaboð til ríkisstjórnarinnar og þingmanna kjördæmisins: Endurreisn bæjarins veltur á afgerandi aðgerðum strax í haust.

Skólastarf er forsenda heimkomu

Fundurinn leggur þunga áherslu á að skólastarf verði tryggt í bænum á komandi haustmisseri. Í ályktuninni segir að það jafngildi hreinni stöðvun á endurreisn bæjarins ef barnafjölskyldum er neitað um grunnþjónustu.

Aðalbros
Aðalbros

„Rök um að skólastarf sé of hættulegt standast ekki. Börn dvelja nú þegar í bænum og öryggi þeirra er betur tryggt í skipulögðu skólastarfi en í frítíma.“

Bent er á að félagslegt rof og missir tengslanets sé stærsta áfallið sem börn í Grindavík hafi orðið fyrir. Það sé óásættanlegt að dæma þau til áframhaldandi óvissu í heilt ár til viðbótar.

Jafnræði í húsnæðismálum

Önnur meginlína ályktunarinnar snýr að fasteignamálum og hlutverki Fasteignafélagsins Þórkötlu. Íbúar krefjast þess að:

  • Ekki verði gert upp á milli íbúa eftir fjölskyldugerð.

  • Öllum fyrrverandi eigendum verði gert kleift að flytja aftur í hús sín ef þeir svo kjósa.

  • Ferlið verði ekki látið dragast á langinn.

Ákall til stjórnvalda

Þótt Grindvíkingar lýsi þakklæti fyrir þann stuðning og umhyggju sem þjóðin og stjórnvöld hafa sýnt er varað við því að sá stuðningur breytist í stýringu ofan frá.

„Við skorum á ríkisstjórn og þingmenn Suðurkjördæmis að hlusta á íbúana og vinna með okkur, en ekki gegn okkur,“ segir í lokaorðum ályktunarinnar. Það sé eina leiðin til að raunveruleg endurreisn samfélagsins geti hafist.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir