Fréttir

Þrjár konur í efstu fjórum
Daði Bergþórsson skipar efsta sæti listans.
Þriðjudagur 3. apríl 2018 kl. 09:10

Þrjár konur í efstu fjórum

- hjá Framsókn og óháðum í Garði og Sandgerði

B-listi Framsóknar og óháðra í sameiginlegu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis hefur verið samþykktur vegna sveitarstjórnarkosninganna þann 26. maí næstkomandi. Á listanum eru 10 konur og 8 karlar, þar af eru þrjár konur í efstu fjórum sætum listans.
 
Núverandi bæjarfulltrúi B-listans í Sandgerði, Daði Bergþórsson, leiðir listann. Í öðru sæti er Álfhildur Sigurjónsdóttir, varabæjarfulltrúi og tollmiðlari, og í því þriðja er Thelma Dögg Þorvaldsdóttir, myndlistarkennari. Í heiðurssæti listans er Guðmundur Skúlason, bæjarfulltrúi, en hann hefur leitt B-listann í Sandgerði frá árinu 2010. 
 
„Ég er gífurlega ánægður með þennan fjölbreytta og vel skipaðan framboðslista. Málefnavinna er að fara í gang og hvetjum við alla áhugasama bæjarbúa að taka þátt í því með okkur. Mikil tilhlökkun og gleði er ríkjandi í framboðshópnum og vilji til að fylgja eftir sameiningu Garðs og Sandgerðis með mikilli og góðri uppbyggingu og gera gott samfélag enn betra. Ég fer bjartsýnn inní baráttuna og vongóður um góða niðurstöðu,“ segir Daði Bergþórsson oddviti B-lista Framsóknar og óháðra í tilkynningu.
 
Framboðslisti Framsóknar og óháðra í sameiginlegu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis:
1. Daði Bergþórsson, bæjarfulltrúi og deildarstjóri
2. Álfhildur Sigurjónsdóttir, varabæjarfulltrúi og tollmiðlari
3. Thelma Dögg Þorvaldsdóttir, myndmenntakennari
4. Erla Jóhannsdóttir, grunnskólakennari
5. Eyjólfur Ólafsson, varabæjarfulltrúi og rafeindavirkameistari
6. Úrsúla María Guðjónsdóttir, laganemi
7. Guðrún Pétursson, flugverndarstarfsmaður
8. Unnar Már Pétursson, vaktstjóri
9. Jóna María Viktorsdóttir, þjónustufulltrúi
10. Jónas Eydal Ármannsson, framhaldsskólakennari
11. Aldís Vala Hafsteinsdóttir, viðskiptafræðinemi
12. Sigurjón Elíasson, tækjastjóri
13. Berglind Mjöll Tómasdóttir, varabæjarfulltrúi og vaktstjóri 
14. Bjarki Dagsson, kerfisstjóri
15. Hulda Ósk Jónsdóttir, verkstjóri
16. Jón Sigurðsson, bóndi
17. Ólöf Hallsdóttir, húsmóðir
18. Guðmundur Skúlason, bæjarfulltrúi og aðstoðarvarðstjóri
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024