Telur ólíklegt að álver rísi í Helguvík
- Álver Norðuráls í Helguvík ekki í fjárhagsspám Reykjanesbæjar
Álver Norðuráls í Helguvík er ekki lengur inni í efnahagsspám Reykjanesbæjar. Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Guðbrands Einarssonar, bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ, á íbúafundi í Stapa í gærkvöld. Um 70 manns mættu á fundinn þar sem til umræðu var íbúakosning um breytingar á deiliskipulagi í Helguvík vegna byggingar á kísilveri fyrirtækisins Thorsil.
Í pallborði á fundinum í gær voru allir bæjarfulltrúar Reykjanesbæjar, ásamt tveimur fulltrúum íbúa sem mótfallnir eru breytingu á deiliskipulagi í Helguvík. Í máli Guðbrands kom fram að ólíklegt væri að álver Norðuráls myndi rísa í Helguvík og að ekki hafi verið gert ráð fyrir því í fjárhagsspám um nokkurt skeið en að hins vegar væru kísilverin tvö þar inni.
Hér má lesa frétt Víkurfrétta um íbúafundinn í gær og hér frétt um fundinn á vef Reykjanesbæjar.
Guðbrandur Einarsson bæjarfulltrúi í pontu á íbúafundi í gær.