HSS
HSS

Fréttir

Rúta stuðningsmanna Njarðvíkur feyktist út af Reykjanesbrautinni
Aðstæður á slysstað voru slæmar, vonskuveður og gekk á með byljum. Þrátt fyrir það gekk vel að ferja farþega af slysstað og til síns heima. Mynd af Facebook-síðu stuðningsmanna Njarðvíkur
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 18. mars 2022 kl. 08:51

Rúta stuðningsmanna Njarðvíkur feyktist út af Reykjanesbrautinni

Litlu mátti muna þegar rúta með stuðningmönnum Njarðvíkur sem var að koma af bikarleik Njarðvíkur og Hauka í gærkvöldi feyktist út af Reykjanesbrautinni í vonskuveðri.

Atvikið átti sér stað skömmu áður en komið var að Fitjum og mátti minnstu muna að rútan myndi velta en aðeins snarræði ökumanns rútunnar kom í veg fyrir að verr færi.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Í rútunni voru stuðningsmenn Njarðvíkur, flestir úr yngri liðum félagsins, og var mörgum þeirra eðlilega brugðið enda brotnuðu rútur við slysið og eitthvað að glerbotum dreifðust inn í rútuna.

Eldri iðkendur studdu þá yngri

Í Facebook-færslu sem Agnar Mar Gunnarsson, þjálfari hjá Njarðvík, setti inn eftir slysið segir hann að þrátt fyrir einhverjar skemmdir á rútunni þá hafi það verið lán í óláni að engin slys hafi orðið á fólki og þrátt fyrir vonskuveður gekk vel að koma öllum úr rútunni og í bíla og þaðan heim til sín. Farþegar í rútunni voru flestir iðkendur úr yngri flokkum Njarðvíkur og margir þeirra urðu skelfingu lostnir.

Þá er Agnar og fleiri aðstandendur ósparir á að hrósa eldri iðkendum sem stigu upp og studdu yngri félaga sína sem voru að vonum mjög skelkaðið eftir atvikið. „Þetta var mikið áfall og hræðslan eftir því. Eldri krakkarnir fá stórt hrós,“ sagði Agnar meðal annars.

Þrátt fyrir tap í bikarnum verða þessir glerhörðu stuðningsmenn án efa mættir í Ljónagryfjuna til að hvetja sitt lið í úrslitakeppni Subway-deildanna sem er rétt handan við hornið.

Hér að neðan má sjá myndir sem Agnar Mar tók á slysstað í gær.

Rúta Njarðvíkinga feyktist út af Reykjanesbrautinni

Tengdar fréttir