Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Keflavíkur

Fréttir

Nágrannavarsla við Gónhól
Miðvikudagur 18. apríl 2018 kl. 06:00

Nágrannavarsla við Gónhól

Íbúar við Gónhól í Reykjanesbæ hafa tekið sig saman og verða með nágrannavörslu í götunni sinni. Reykjanesbær býður upp á nágrannavörslu í Reykjanesbæ en í henni gera íbúar með sér samkomulag um eðli nágrannavörslunnar í hvert sinn.

Lágmarks nágrannavarsla felur í sér að íbúi taki að sér að skrá grunsamlega hegðun, bifreiðanúmer og lýsingu á fólki og tilkynni til lögreglu með því að hringja í símanúmerið 112.

Public deli
Public deli

Góður granni getur því til viðbótar m.a. tekið að sér að:
- Fylgjast með að póstur safnist ekki upp í bréfalúgu
- Setja sorp í ruslatunnu yfirgefna hússins
- Leggja bíl í heimreiðina við húsið
- Draga frá og fyrir gluggatjöld í gluggum
- Kveikja og slökkva ljós

Ekki er ætlast til að þátttakendur taki að sér löggæsluhlutverk eða grípi inn í atburðarásina. Nágrannavarslan ein nægir ekki til að upplýsa og uppræta innbrot/skemmdir. Lögreglan vinnur að afbrotavörnum, rannsóknum og handtökum með góðri aðstoð íbúa á hverju svæði.