Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Magnús til viðræðu um starf bæjarstjóra
Miðvikudagur 30. maí 2018 kl. 13:49

Magnús til viðræðu um starf bæjarstjóra

Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, hefur lýst því yfir að hann sé til viðræðna um að starfa sem bæjarstjóri í sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis. Sigrún Árnadóttir, bæjarstóri í Sandgerði, hefur hins vegar sagt að hún sækist ekki eftir starfi bæjarstjóra í sameinuðu sveitarfélagi.

Í samtali við Víkurfréttir segir Magnús  að hann hafi ekkert frétt af því hvernig staðið verði að ráðningu bæjarstjóra, þannig að framtíðin sé óljós í þeim efnum.

Public deli
Public deli