Leikfélag Keflavíkur
Leikfélag Keflavíkur

Fréttir

Lýst eftir strokufanga
Þriðjudagur 17. apríl 2018 kl. 09:27

Lýst eftir strokufanga

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Sindra Þór Stefánssyni en hann strauk frá fangelsinu að Sogni nú í nótt.  Sindri hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 2. febrúar 2018 vegna rannsóknar lögreglunnar á umfangsmiklum þjófnaði á tölvubúnaði.  Sindri er íþróttamannslega vaxinn með skolleitt hár, skegghýung og 192 cm á hæð.  Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum strauk Sindri frá Sogni kl. 01:00.

Allir þeir sem geta veitt upplýsingar um ferðir Sindra frá því kl. 01:00 í nótt er beðnir um að koma þeim upplýsingum á framfæri við Lögregluna.
 

Public deli
Public deli