Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Landsnet og Sveitarfélagið Vogar skrifa undir samkomulag vegna Suðurnesjalína
Frá undirritun samninga milli Sveitarfélagsins Voga og Landsnets í dag. VF/Hilmar Bragi
Föstudagur 30. júní 2023 kl. 14:13

Landsnet og Sveitarfélagið Vogar skrifa undir samkomulag vegna Suðurnesjalína

Sveitarfélagið Vogar og Landsnet hafa komist að samkomulagi um lagningu á Suðurnesjalínu 2 sem loftlínu og að samhliða verði unnið að undirbúningi þess að leggja Suðurnesjalínu 1 í jörðu. Þegar Suðurnesjalína 2 verður komin í rekstur verður ráðist í fyrsta áfanga þess verkefnis sem felur í sér að Suðurnesjalína 1 verði lögð í jörðu á um 5 km kafla á milli Grindavíkurvegar og Vogaafleggjara. Strengframkvæmdin er jafnframt fyrsti áfanginn í að styrkja tengingu Sveitarfélagsins Voga vegna mögulegrar tenginga stærri notenda við flutningskerfið í sveitarfélaginu.

Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets, segir það fagnaðarefni að öll framkvæmdarleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 liggi fyrir.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Samkomulagið sem við undirrituðum í dag náðist með góðri samvinnu okkar hjá Landsneti og Sveitarfélagsins Voga. Suðurnesjalína 2 mun tryggja raforkuöryggi íbúa og atvinnulífs á Suðurnesjum og um leið skapa tækifæri til uppbyggingar, atvinnuþróunar og orkuskipta. Ný áform um atvinnuuppbyggingu innan sveitarfélagsins munu kalla á frekari styrkingu á flutningskerfinu og við sjáum fyrir okkur að fyrsti áfanginn í þá áttina sé að setja hluta af Suðurnesjalínu 1 í jörðu. Framundan eru umtalsverðar framkvæmdir í flutningskerfinu á Suðurnesjum til að tryggja öryggið á svæðinu og mæta auknum orkuflutningi vegna orkuskipta ásamt fjölbreyttri uppbyggingu atvinnutækifæra,“ segir Guðmundur Ingi.

Skipulagsnefnd Voga samþykkti á fundi sínum í gær að veita framkvæmdaleyfi fyrir Suðurnesjalínu 2 á þeim forsendum sem fram koma í samkomulaginu og samþykkti bæjarstjórn framkvæmdaleyfið á fundi í hádeginu í dag.

Gunnar Axel Axelsson, bæjarstjóri Sveitarfélagsins Voga, segir það ánægjulegt að sátt hafi náðst í þessu mikilvæga hagsmunamáli.

„Það er mikið fagnaðarefni að okkur hafi tekist að ná sátt í þessu mikilvæga hagsmunamáli. Við bindum vonir við að nú verði hægt að leggja grunninn að því að auka afhendingaröryggi á Suðurnesjum til framtíðar, meðal annars með tilliti til náttúruvár. Í samkomulaginu er komið til móts við sjónarmið bæjaryfirvalda í Vogum sem hafa lagt þunga áherslu á að framkvæmdin hafi sem minnst áhrif á ásýnd svæðisins sem eins og allir vita er gátt erlendra ferðamanna inn í landið og hefur hlotið viðurkenning UNESCO sem jarðfræðilega mikilvægt svæði á heimsvísu. Með samkomulaginu er jafnframt tekið mikilvægt skref í átt að því að styrkja flutningskerfið innan sveitarfélagsins sem styður við metnaðarfull áform bæjaryfirvalda um öfluga atvinnuuppbyggingu í Vogum,“ segir Gunnar Axel.

Fréttin verður uppfærð.