Land bólgnar út og hætta á eldgosi
Atburðir eru í náttúrunni við suðurenda Kleifarvatns og á Sveifluhálsi sem geta endað með eldgosi. Síðustu ár hefur verið að byggjast upp spenna á svæðinu og landið bólgnar út. Jarðskjálftar eru þar tíðir en þeir eiga sér upptök á 6-7 km dýpi. Ástandið er viðvarandi og þarna gæti verið eitthvað í uppsiglingu. Þetta segir Ari Trausti Guðmundsson jarðfræðingur. Hann hélt erindi um jarðvá á Reykjanesi fyrir fullu húsi í Keili á Ásbrú sl. miðvikudag.
Ari Trausti segir hins vegar að það geti enginn sagt til um það hvað atburðurinn taki langan tíma eða hvort virknin fjari einfaldlega út án þess að komi til eldsumbrota.
Á Reykjanesskaganum eru fjögur eldstöðvakerfi og gliðnunar- og eldgosahrinur verða í þeim með 500 til 1000 ára millibili og síðast voru eldgos á Reykjanesskaganum á þrettándu öld þannig að bráðum fer að nálgast sá tími að búast mætti við einhverju. Hins vegar verði að horfa til þess að eldstöðvarnar hegði sér ekki eins og klukkur og því ekki hægt að segja til um það hvort gos verði á morgun, eftir ár, áratugi eða aldir.
Fólk ætti að vera undir það búið að eitthvað sé að fara að gerast og eldgos á Reykjanesskaganum ætti í raun ekki að koma fólki óvart. Eldgos eiga sér einhvern aðdraganda og fólk verður ekki tekið í bólinu, segir Ari Trausti.
Það verður ekki hjá því komist að það gjósi á svæðinu og hentugasta staðsetningin fyrir gos er á því svæði þar sem nú er spenna. Hins vegar er líka goshætta við Grindavík og þar geta hraun runnið yfir byggð. Á sama hátt geta hraun ógnað orkuverinu í Svartsengi og eldsumbrot geta einnig ógnað Reykjanesvirkjun. Í ljósi sögunnar er það einnig staðreynd að gos á þessu svæði verða í hrinum sem geta staðið með hléum í jafnvel 30 ár.
Vegna þeirra atburða sem eru að gerast í náttúrunni við Kleifarvatn og á Sveifluhálsi þá hefur Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra nú látið hefja vinnu við viðbragðsáætlun um rýmingu byggðar á Reykjanesi og hvernig brugðist verði við því ef raflínur rofna eða vatnslagnir því öll Suðurnes eru háð heitu vatni úr Svartsengi og jafnframt er kaldavatnsöflun frá sama svæði. Þá þarf einnig að horfa til þess að alþjóðaflugvöllurinn er á Reykjanesi og aðeins tvær akstursleiðir eru frá Suðurnesjum. Önnur um Reykjanesbraut, hin um Suðurstrandarveg.
Ítarlegra viðtal við Ara Trausta Guðmundsson verður í Suðurnesjamagasíni Víkurfrétta á ÍNN og hér á vf. is mánudaginn 18. febrúar.
Ari Trausti Guðmundsson á fyrirlestrinum í Keili sl. miðvikudag.