Fréttir

  • Kom særður og blóðugur á lögreglustöð eftir hnífsstungu
    Sérsveitarmenn lögreglu á vettvangi í dag. VF-myndir: Hilmar Bragi
  • Kom særður og blóðugur á lögreglustöð eftir hnífsstungu
Miðvikudagur 30. ágúst 2017 kl. 19:23

Kom særður og blóðugur á lögreglustöð eftir hnífsstungu

Götum í Njarðvík var lokað um tíma í dag meðan sérsveitarmenn leituðu að og handtóku mann sem hafði veitt öðrum áverka með hnífi.

Um klukkan 16:30 í dag kom blóðugur maður á lögreglustöðina á Hringbraut í Reykjanesbæ og kvaðst hafa verið stunginn með hnífi. Hann var særður en þó ekki lífshættulega.

Í framhaldi af því voru lögreglumenn ásamt sérsveitarmönnum sendir á vettvang í þeim tilgangi að finna og handtaka meintan árásaraðila. Var hann yfirbugaður skömmu síðar og er nú í haldi lögreglu.

Líðan mannsins sem var stunginn er eftir atvikum.

Málið er í rannsókn. Frekari upplýsingar verða ekki veittar að sinni, segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024