Fréttir

Klæddi sig í 8 buxur og 10 peysur töskugjalds
Úr flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Laugardagur 13. janúar 2018 kl. 11:05

Klæddi sig í 8 buxur og 10 peysur töskugjalds

- lét öllum illum látum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar

Ferðamaður sem vildi ekki greiða gjald til þess að innrita tösku sína í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni greip til þess ráðs að klæða sig í átta buxur og tíu boli eða peysur úr töskunni til að sleppa við gjaldið. Honum var vísað frá flugi og gerð grein fyrir því að hann gæti skapað hættu fyrir aðra farþega þar sem hann gæti tæpast hreyft sig þar sem hann væru svo dúðaður í fatnað. Þessu snöggreiddist maðurinn, sló í borð og lét öllum illum látum svo lögreglan á Suðurnesjum var kvödd á staðinn. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024