HSS sumarstörf 14-21 mars
HSS sumarstörf 14-21 mars

Fréttir

Harður árekstur á Suðurnesjum
Föstudagur 19. janúar 2018 kl. 10:52

Harður árekstur á Suðurnesjum

Harður árekstur varð í vikunni í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum þegar bifreið var ekið aftan á aðra sem var að nálgast gatnamót á hægri ferð. Ökumaður fyrrnefndu bifreiðarinnar hafði blindast af sólinni sem var lágt á lofti og því fór sem fór. Báðir ökumennirnir voru fluttir undir læknishendur á HSS og fjarlægja þurfti bifreiðarnar með dráttarbifreið.

Þá varð þriggja bíla árekstur í Njarðvík og tvær bifreiðar rákust jafnframt  saman á Ásbrú, skemmdir urðu á ökutækjunum en ekki slys á fólki.

Public deli
Public deli