Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi
Ríkislögreglustjóri lýsir yfir óvissustigi almannavarna fyrir allt landið. Ákvörðunin er tekin í samráði við alla lögreglustjóra landsins og í samræmi við veðurspá Veðurstofu Íslands, sem spáir aftakaveðri með appelsínugulum veðurviðvörunum um allt land.
Fylgist með frekari upplýsingum fra almannavörnum, á Facebook https://www.facebook.com/Almannavarnir/ um veðurspá á www.vedur.is, færð á vegum www.vegagerdin.is
Óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað geti gerst af náttúru- eða mannavöldum, sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar er ógnað. Samráð á milli almannavarna og þeirra stofnana sem málið varðar er aukið.
English:
The National Commissioner of the Icelandic Police in association with the District Commissioners in Iceland declares an uncertainty phase based on weather forecast from the Meteorological Office that has issued an orange weather alert for most of the country with violent storm with hurricane force winds in all areas in Iceland.
Travel advisory for all areas is in effect. More information on the weather forecast at the Meteorological Office website https://en.vedur.is/ and for road conditions http://www.road.is/ Follow the Civil Protection updates on Facebook /https://www.facebook.com/Almannavarnir/
Uncertainty phase/level is characterized by an event which has already started and could lead to a threat to people, communities or the environment. At this stage collaboration and coordination is elevated between the Civil Protection Authorities and stakeholders.