Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Akurskóli fékk góða útkomu úr mati Menntamálastofnunar
Frá vinstri Sólveig Silfá Karlsdóttir, deildarstjóri, Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri og Gróa Axelsdóttir, aðstoðarskólastjóri. VF-mynd/dagnyhulda
Laugardagur 8. apríl 2017 kl. 06:00

Akurskóli fékk góða útkomu úr mati Menntamálastofnunar

Menntamálastofnun framkvæmir svokallað ytra mat á grunnskólum hér á landi og síðasta haust var Akurskóli í Innri-Njarðvík einn þeirra skóla sem metinn var. Niðurstaða matsins var sú að af 23 liðum sem kannaðir voru, voru fjórtán metnir mjög góðir og taldir fyllilega samræmast lýsingu um gæðastarf. Sjö liðir voru metnir þannig að flestir þættir þeirra væru í samræmi við lýsingu á gæðastarfi. Sigurbjörg Róbertsdóttir, skólastjóri Akurskóla, segir niðurstöðuna mikið gleðiefni og staðfesta að í skólanum sé unnið gæðastarf. „Við tókum matinu sem skemmtilegri áskorun og góðu tækifæri til að sjá hvar við stæðum. Okkur grunaði að við myndum koma ágætlega út en niðurstaðan var óvanalega góð. Að sama skapi er líka dýrmætt að fá ábendingar um það sem betur má fara,“ segir hún. Til að mynda fékk Akurskóli athugasemd um að valgreinar væru of fáar og í haust verður bætt úr því með valhópum í 1. til 7. bekk og með sérstökum vinnustundum þar sem nemendur í 8. til 10. bekk geta valið hvaða námsgrein þeir vilja leggja áherslu á í tvo tíma á viku. Nú þegar hafa margir skólar á Íslandi farið í gegnum ytra mat og stefnt er að því að allir skólar á landinu fari í gegnum slíkt mat á næstu árum.

Bæta kennslu með markvissu mati
Ytra mat Menntamálastofnunar fer, í stuttu máli sagt, þannig fram að skólastjórnendur senda stofnuninni ýmis gögn, svo sem skólanámskrá, starfsáætlun, allar reglur skólans, verklagsreglur, handbækur starfsmanna og fleira. Tveir fulltrúar Menntamálastofnunar dvelja svo í skólanum í fjóra daga og sækja um þrjátíu kennslustundir og meta gæði kennslunnar. „Fulltrúarnir komu í skólann ákveðna daga en fóru fyrirvaralaust í kennslustundir. Þeir tóku mörg viðtöl, bæði við yngri og eldri nemendur og við formann nemendafélagsins, fulltrúa úr skólaráði og fulltrúa foreldra,“ segir Sigurbjörg. Þá voru einnig tekin viðtöl við skólastjórnendur, starfsmenn og kennara.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Útkoma Akurskóla úr ytra mati Menntamálastofnunar.

Grænt - Flestir eða allir þættir sterkir. Mjög gott verklag sem samræmist fyllilega lýsingu um gæðastarf.

Ljósgrænt - Fleiri styrkleikar en veikleikar. Gott verklag, flestir þættir í samræmi við lýsingu á gæðastarfi.

Gult - Fleiri veikleikar en styrkleikar. Viðunandi verklag, uppfyllir viðmið um gæðastarf að mörgu leyti, einhverjir mikilvægir þættir sem þarfnast úrbóta.

Rautt - Mikil umbótaþörf í flestum eða öllum þáttum. Óviðunandi verklag, uppfyllir ekki viðmið um gæðastarf í mörgum mikilvægum þáttum. 

Gróa Axelsdóttir, aðstoðarskólastjóri Akurskóla, bendir á að í skólanum hafi það verklag verið tekið upp haustið 2014 að skólastjórnendur fylgist með einni og einni kennslustund. „Þá sitjum við stjórnendur til hliðar og fylgjumst með. Eftir kennslustund hrósum við kennurum fyrir það sem vel var gert og bendum á það sem betur má fara. Við fengum þau viðbrögð frá Menntamálastofnun að þetta verklag væri til fyrirmyndar.“ Gróa segir það sömuleiðis tilfinningu skólastjórnenda í Akurskóla að verklagið hafi bætt kennslu hjá kennurum. „Þetta er skref sem sífellt fleiri skólar eru að stíga, að meta kennsluna markvisst.“

Þakkar góðum hópi starfsfólks
Fyrir utan einkar góða niðurstöðu í matsþætti tengdum stjórnun fékk Akurskóli góða niðurstöðu varðandi alla þætti er snerta nám og kennslu. Sigurbjörg segir það einstaklega góðum hópi starfsfólks að þakka. „Suðurnesin eru þannig svæði að við skólastjórnendur finnum mjög hratt fyrir þenslu og þá leita kennarar í önnur störf. Við erum með hátt hlutfall leiðbeinenda við kennslu en þeir eru mjög vel menntaðir. Margir þeirra eru í kennaranámi og hafa lokið námi af ýmsu tagi og auðvitað nýtist það við kennsluna.“ Gróa bendir á að starfsmannahópurinn sé ungur og móttækilegur fyrir breytingum og að það komi sér vel hvern dag í Akurskóla.
[email protected]