Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Við brottför Hersins
Fimmtudagur 5. október 2006 kl. 16:59

Við brottför Hersins

Öll viðbrögð ríkisstjórnarinnar, við þeirri staðreynd að Bandaríkjamenn væru að hverfa af landi bortt. hafa verið frekar fálmkennd og máttvana. Stjórnin vissi fyrir síðustu alþingiskosningar, vorið 2003, að Bandaríkjamenn hygðust fara héðan með herþoturnar. Því var haldið leyndu fyrir kjósendum fram yfir kosningar, en þessi frétt kom í dagsljósið síðar þá um sumarið. Þá þegar vissu náttúrlega allir hvert stefndi. Innrásin í Írak var hafin með gríðarlegum kostnaði fyrir Bandaríkjamenn. Bandaríkjamenn eiga við efnahagsörðugleika að stríða. Þeir hafa verið að loka herstöðvum víða, ekki síst í Evrópu. Röðin hlaut að koma að Keflavík og Íslandi og þá frekar fyrr en seinna.

Við í Frjálslynda flokknum ræddum þetta opinberlega strax sumarið 2003 og bentum á leiðir til úrbóta. Hluti af þeim leiðum sem við töluðum um þá, er nú innifalinn í því samkomulagi sem ríkisstjórnin hefur nú gert við Bandaríkjamenn, þremur árum síðar.  Íslendingar hafa greinilega haft afskaplega veika samningsstöðu gegn Bandaríkjamönnum þegar endanlega var farið í að ganga frá því samkomulagi sem nú liggur fyrir. Samningurinn og viðskilnaðurinn ber það með sér.

Breytt staða
Kaflaskiptin í varnarmálum nú vekja nokkrar spurningar: Þurfum við Íslendingar varnir? Þurfum við að vera í hernaðarbandalagi? Er landið varnarlaust? Ég svara fyrstu spurningunum með jái. Auðvitað þurfum við varnir og öryggiskerfi. Það hefur alltaf verið skoðun Frjálslynda flokksins, að við eigum að vera í NATO, þar sem við höfum staðið okkur mjög vel. Þar höfum við verið gefendur og það eru NATO og Bandaríkjamenn sem hafa verið þiggjendur. Við höfum látið af hendi land og dýrmæta aðstöðu, og fólk til að starfa fyrir Bandaríkjamenn og fyrir NATO.
En er  landið nú án varna? Nei, ég tel svo ekki vera þó samningurinn sem liggur fyrir sé ekki góður. Í honum ætti að felast nægileg trygging fyrir okkur Íslendinga fyrir því að hér verði hægt að grípa til varna ef í harðbakkann slær. Auðvitað er það svo að hingað yrði hægt að senda með tiltölulega skömmum fyrirvara varnarherlið frá Bandaríkjunum eða NATO-ríkjum í nágrenni okkar ef svo illa færi að þess þyrfti. Ísland er ekki svo langt frá Norður-Ameríku eða NATO ríkjum Evrópu. Það veltur þó að vísu á ýmsum þáttum sem þarf að uppfylla núna í framtíðinni, hvort þetta verður eins skilvirkt og vonir standa til. Sjálfsagt mál er að miðstöð íslenskra varnarmála verði í Reykjanesbæ, í grennd við alþjóðaflugvöllinn.

Heræfingar og öryggi
Mér líst ágætlega á að NATO-ríkjunum og Bandaríkjamönnum verði gefinn kostur á að stunda hér heræfingar í framtíðinni. Við Íslendingar ættum að taka þátt í þeim heræfingum. Það þarf  t. d. að efla Landhelgisgæsluna og hún ætti að taka þátt í flotaæfingum hér í Norðurhöfum með öðrum NATO-þjóðum í framtíðinni.
Íslendingar ættu að koma upp einhvers konar varnarliði, sem fengi þjálfun til að geta unnið með herliði frá NATO ef þess þyrfti. Hér á landi ætti að vera fyrir hendi einhvers konar vopnabúr sem hægt yrði að grípa til ef þess yrði þörf, þannig að Íslendingar gætu varið hendur sínar á meðan hjálp væri að berast frá nágrannalöndunum. Með þeim hætti væri hægt að tryggja varnir landsins með trúverðugum hætti til framtíðar.
Við þurfum svo líka að fara vandlega og fordómalaust yfir það hvernig við ætlum að tryggja innra öryggi ríkisins í framtíðinni. Það er sjálfsagt mál með tilliti til glæpastarfsemi, hvort sem um er að ræða hefðbundna glæpi eða hryðjuverk. Allar sjálfstæðar þjóðir hafa einhvers konar öryggisþjónustu á sínum snærum. Það er sjálfsagt og eðlilegt að íslenska ríkið hafi einnig einhvers konar slíka þjónustu á sínum snærum. Slík þjónusta þarf að heyra undir öruggt æðra eftirlit, til að mynda á vegum Alþingis.

Mannauðurinn
Sinnuleysi íslenskra stjórnvalda í garð þess fólks sem nú hefur misst vinnuna á Keflavíkurflugvelli er til háborinnar skammar. Þetta voru 600 manns. Rúmlega 100 eru enn án atvinnu nú þegar herinn er farinn. Félagsvísindamenn ættu að kanna hvað varð um það fólk sem áður vann á vegum Bandaríkjahers. Hvers konar störf hefur það fengið? Hvernig gekk því að finna sér ný störf við hæfi? Hvernig er afkoma þeirra nú miðað við það hvernig hún var þegar þau störfuðu fyrir Bandaríkjamenn?
Á Alþingi hef ég mælst til þess að gerðir yrðu starfslokasamningar við það fólk sem missti vinnuna við brottför Bandaríkjahers. Ekki síst þau sem hafa unnið lengi fyrir herinn, jafnvel lungann úr sinni starfsævi. Þetta er siðferðislegt mál. Þó að þetta fólk hafi verið á launaskrá hjá Bandaríkjaher skulum við ekki gleyma því að það hefur verið að vinna og leggja starfskrafta sína í að sinna varnar- og öryggismálum landsins. Gildir þá einu hvort það hafi unnið í eldhúsi eða á verkstæði eða einhvers staðar annars staðar. Þetta fólk hefur lagt sín lóð á vogarskálarnar til að hér væri hægt að hafa trúverðugan varnarviðbúnað á viðsjárverðum tímum. Okkur ber að sinna þessu fólki miklu betur en við höfum gert. Örlög þeirra hafa nánast algerlega gleymst í umræðunni núna þegar herinn hefur verið að fara. 
Því miður hafa þessar tillögur ekki fengið neinn hljómgrunn stjórnarliða. Þeir hafa þagað þunnu hljóði, utan Bjarni Benediktsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem brást við málflutningi mínum. Hann fór í ræðustól þingsins og taldi allar hugmyndir algerlega fráleitar um starfslokaaðgerðir af hálfu hins opinbera til að rétta hlut þeirra sem hafa misst störf sín við brottför hersins.

Siðferðislegar skyldur
Ríkisstjórninni ber siðferðisleg ábyrgð til að gera ráðstafanir til þess að haldið verði utan um þetta fólk og það verði séð til þess að úr málum þeirra leysist með sem allra bestum hætti. Helst hefði ég viljað að íslensk yfirvöld hefðu lagt fram einhvers konar starfslokapakka, bæði með fjárhagsaðstoð og líka annarri aðstoð, til að mynda varðandi endurmenntun þannig að þetta fólk sem hefur þjónað okkur öllum á sviði öryggis- og varnarmála gæti að minnsta kosti átt jafngóða tíma framundan og það hefur átt á meðan það vann á vellinum.
Ráðleysið varðandi hagi þessa fólks, endurspeglar ráðleysið sem ríkisstjórnin hefur sýnt við brottför Bandaríkjahers.

Magnús Þór Hafsteinsson, alþingismaður og varaformaður Frjálslynda flokksins.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024