Um starf dagmæðra
Ég undirrituð verð alltaf jafn hissa þegar ég les greinar eins og Jón Eysteinsson, bæjarfulltrúi skrifaði í Víkurfréttir um að opna þurfi leikskóla fyrir börn 12 mánaða gömul.
Gerir bæjarfulltrúi sér grein fyrir þeirri þjónustu sem dagforeldrar á Suðurnesjum veita börnum á þessum aldri?
Gerir bæjarfulltrúi sér grein fyrir þeim breytingum sem yrðu að vera gerðar á leikskólum til þess að þörfum þessara barna væri mætt?
Þau eru allflest ekki farin að ganga og eru enn með bleyju. Sum börn eru enn á bjósti, með pela, eða borða aðeins barnamat, önnur borða ekki allan mat, og flest þeirra eru mötuð. Þau þurfa ennfremur að sitja í lokuðum stólum og svona mætti lengi telja.
Þessi börn gera sér enga grein fyrir hættum á útivistarsvæði, t.d. rólum og öðru. Sumum finnst æðislegt að opna leikskóla fyrir 12 mánaða börn helst yngri, en ég spyr af hverju mega þessi börn ekki fá að vera ungabörn lengur og fá að vera í vernduðu umhverfi og ástúð dagforeldris?
Af hverju liggur öllum svona á að setja barnið sitt á leikskóla þar sem að eru 20 eða fleiri börn á deild þar sem dagforeldri er aðeins með 5 börn.
Af þeirri reynsla sem ég hef að því að annast börn, þá tel ég að dagforeldrar á Suðurnesjum mæti ekki síður þörfum þessara barna en leikskólar á Suðurnesjum.
Vil ég þó taka fram að þetta er sagt með fullri virðingu við leikskóla á Suðurnesjum.
Við dagforeldrar á Suðurnesjum erum bara orðnir þreyttir á að aldrei sé talað um okkar störf með virðingu þar sem að við teljum okkur vera að vinna okkar starf mjög vel. Sífellt er verið að tala um að opna yngri og yngri deildir á leikskólum.
Gerir bæjarfulltrúi sér að einhverju leyti grein fyrir þeim störfum sem dagforeldrar inna af hendi?
Og hvað verður um þeirra störf ef opna á þessa leikskóla? Það eru nefnilega ekki allir sem vilja setja börnin sín svona ung á leikskóla sumir vilja bara hafa barnið sitt í vernduðu umhverfi svona ungt og lofa barninu sínu að vera barn. Ég vil benda Bæjarfulltrúa á að í Sandgerði er ekkert dagforeldri vegna þess að þar fara börnin á leikskóla 12 mánaða og telja dagforeldrar ekki nóg starf fyrir sig þar sem að þeir hafa einungis börnin í 3 mánuði þar til þau fara á leikskóla.
Eg vil einnig benda bæjarfulltrúa á að einstæðir foreldrar fá eingöngu 6 mánuði í fæðingarorlof. Hvað með þeirra börn? Hver á að hugsa um þau frá þeim aldri fram
að 12 mánaða ef að störf dagforeldra leggjast niður?
Ég furðaði mig einnig á skrifum bæjarfulltrúa um að börnin ættu að fá morgunmat í skólanum. Hvað er að verða um okkur? Ég persónulega nýt morgunstundarinnar með barninu mínu og tel mig fyllilega færa um að gefa henni mogunmat. Hvar eru okkar skyldur sem foreldrar?
Ég vil einnig benda bæjarfulltrúa á að á meðan hann og hans flokkur hefur þessa stefnu um leikskóla þá þarf hann ekki að reykna með atkvæði dagforeldra á Suðurnesjum.
Ragnhildur Ævarsdóttir
Dagmóðir